“Mannréttindi að láta ríkið rannsaka sig.”

Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra,  sagði í viðtalið á Rás 2 að hugmyndir hennar um skipulagða njósnastarfsemi ríkisins væru enn á umræðustigi.  Margt ætti eftir að breytast áður enn hún sendi lögin til Alþingis.  Í viðtalinu gerði hún lítið úr málinu og vildi meina að hún hefði ekki sérstakan áhuga á því.  Þetta væri bara eitthvað sem löggan bæði um og væri til siðs í öllum siðuðum löndum sem við viljum bera okkur saman við.

Mikilvægt væri líka að passa upp á mannréttindi fólks og hafa þyrfti strangt eftirlit með njósnastarfseminni.  Ragna sagðist vera opin fyrir öllum góðum hugmyndum og ræða þyrfti málið í þjóðfélaginu.  Hún sæi síðan lögguna ekki fyrir sér að rannsaka saklaust fólk af tilefnislausu.  Heldur vildi löggan fá þessar heimildir til að fylgjast með hugsanlegum afbrotamönnum og koma í veg fyrir mannsal.

Fyrirgefðu Ragna Árnadóttir en hefur lögreglan ekki í dag heimildir til að rannsaka fólk ef grunur leikur á einhverju misjöfnu t.d. innfluttning á fíkniefnum eða öðrum glæpum.  Ertu ekki að gera lítið úr málinu til að þyrla ryki framan í fólk?

http://dagskra.ruv.is/ras2/4519185/2010/08/16/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments