Ekki eru allir jafn skilningsríkir og Íslendingar þegar kemur að tilviljunum, óheppni og vanhæfni. Gengi elllilífeyrisþega sem rændi og pyndaði fjármálaráðgjafa sinn til að refsa honum fyrir blekkingar var dæmt í fangelsi í Þýskalandi dag.
Óaldaflokkurinn aldraði sat fyrir fjármálaráðgjafanum James Amburn, 56 ára, fyrir utan heimili hans í Speyer í vesturhluta Þýskalands, þeir bundu hann með málningarlímbandi og tróðu í skott bifreiðar eftir að einn meðlimur hópsins hafði danglað í höfuð þjónustufulltrúans með göngugrind.
Saksóknari segir félagana Koening og Dehmer hafa ráðist á Amburn fyrir utan hús hans og troðið honum í stóran pappakassa sem þeir svo trilluðu (á göngugrindinni?) yfir í skott á þýskri Audi saloon bifreið, silfurlitri, með beinni innspýtingu og sjálfskiptri, sem er þægilegt fyrir eldri borgara sem eru seinir á beinskiptingunni.
Flokkurinn vildi reyna að endurheimta tap upp á 2,3 milljónir punda sem fjárfestar voru með hjálp Amburns í bréfum sem lækkuðu í verði í alþjóðlegu niðursveiflunni.
Ekið var með Amburn 300 mílur í hús við hið fallega Chiemsee vatn í Bavaríu, en það gekk þó ekki betur en svo að ráðgjafinn slapp frá þeim á bensínstöð. Öldruðum ræningjum hans tókst þó að endurheimta hann og börðu hann svo við það tækifæri að tvö rifbein brotnuðu.
Amburn var haldið í kjallara hússins í fjóra daga í júní síðastliðinn og var barinn og pyndaður af ellilífeyrisþegunum, knúnum áfram af bræði sem nærðist á brostnum draumum um gullin starfslokaár með nóg af gulli í bankanum.
“Hann sagðist vera viðskiptaráðgjafi og lofaði 18% arði á sparnað okkar,” sagði Koening. “Í byrjun stóðst það, en svo skeit hann yfir okkur.”
Koening hjónin hittur fyrir tilviljun Dehmer, sem sagði þeim að Amburn skuldaði honum 690.000 dollara. Í sameiningu ákváðu þau svo að veita honum ráðningu.
“Óttinn við dauðann var ólýsanlegur,” sagði Amburn og bætti við að hann hefði verið barinn og pyndaður í þá fjóra daga sem honum var haldið nöktum í kjallaranum.
Honum var bjargað eftir að eldriborgararnir skipuðu honum að senda fax til að losa um fjármagn af svissneskum reikningi og tókst að krota beiðni um lögregluaðstoð á faxið meðan hann fékkst við þá viðskiptafærslu.
Þeir gömlu voru svo ánægðir með árangur pyndinganna í formi fjármagns frá Sviss að þeir hleyptu Amburn út í garð í smókpásu, en þar reyndi hann að leggja á flótta á ný með því að hlaupa yfir grindverk.
Í grenjandi rigningu hljóp hann niður götuna með fangara sína á eftir sér, akandi á Audi A8 bifreiðinni sem þeir höfðu notað til fangaflutningsins áður. Margir sáu ráðgjafann, en Koening kallaði til þeirra ”Hann er þjófur!”
Amburn var því draslað aftur í kjallarann. Skömmu síðar hringdi svissneski bankinn í lögreglu í Þýskalandi eftir að hafa séð skilaboð á faxinu um að hringja í lögreglu.
Vopnað lið sérsveitamanna réðist á húsið og frelsaði nakinn og hrakinn fjármálaráðgjafa sem enn þiggur áfallahjálp vegna eldraunarinnar.
Verjandi flokksins hélt því fram að fólkið væri ekki “stórglæpafólk”.
En sækjandinn var á öðru máli og sagði það hafa sýnt “mikinn glæpaþrótt”.
Old Rage Pensioners jailed for kidnapping and torturing financial adviser over investment losses
Forsíðumynd af Chiemsee vatni: CC Allie Caulfield

Comments
Powered by Facebook Comments