
Ef vísindamenn frá Mars myndu rannsaka tímgunarkerfi karlmanna, þá myndu þeir sennilega komast að þeirri niðurstöðu að mannkyn muni deyja út, og það fljótlega. Í samanburði við önnur spendýr þá framleiðum við tiltölulega fáar nothæfar sáðfrumur, sáðfrumur sem geta synt nógu langt og svo frjóvgað egg.
Allt að einn af hverjum fimm hraustum, ungum mönnum á aldrinum 18-25 framleiða afbrigðilega fáar sáðfrumur. Það sæði sem þeir framleiða er oft af lágum gæðum. Raunar eru aðeins 5-15 prósent af sáðfrumum þeirra að jafnaði nógu góðar til að teljast “eðlilegar” samkvæmt stöðlum WHO, og þetta eru samt ungir og heilsuhraustir karlmenn. Í samanburði eru 90 prósent af sáðfrumum nauta eða jafnvel rotta eðlilegar.
Þetta er athyglisverði hlutinn af grein Íhaldsmannsins um þetta hrun á sæðisgæðum nútímakarlmanna. Seinni hlutinn fer í að flækja hlutina. Í raun er málið einfalt. Endalaus röð ”tilviljana, óheppni og vanhæfni” hefur ráðist á frjósemi okkar karla, og einnig kvenna. Þegar staðall var settur um hvaða plasttegundir mætti nota um matvæli, þá var valin sú tegund sem lekur sameindum sem líkjast kvenhormónum út í matvælin og dregur úr frjósemi okkar karla, flýtir kynþroska stúlkna og færir þeim aukna tíðni krabbameina. Bólusetningar valda oft, fyrir “tilviljun”, ófrjósemi, sérstaklega hjá konum. Og svo framvegis.
Vísindamenn Sameinuðu þjóðanna fylgjast með framvindunni, mæla frjósemina reglulega og hlakka yfir því hve hratt hún fellur. Það er ekkert panik á þeim bæ yfir ófrjóseminni, bara vísindalegur áhugi og mæligleði. Það eru sem sé sömu mennirnir sem höfðu svo miklar “áhyggjur” af lífi fólks vegna svínaflensunnar svokölluðu, að þeir vildu helst bólustja alla til að “vernda” þá fyrir ótímabærum dauða… eða svo vill fólk víst trúa.
Þessir menn eru ekki að hlaupa til og skipa fólki að hætta að borða úr plastumbúðum eða hætta bólusetningum, eða hætta að eta hormónakjöt og erfðabreytt jukk, nei, þeir vilja nefnilega að okkur fækki. Að minnsta kosti niður í 2 milljarða. Þeir vilja sem sé að tveir af hverjum þremur deyji með einum eða öðrum hætti á þessari öld.
Vísindakommissar Obama heitir Holdren, og hann skrifaði skuggalegt rit sem heitir EcoScience einhverntíma á 8. áratugnum. Þar íhugar hann ásamt Ehrlich hjónunum (vísindakommisar Búsh og konu hans) hvernig best sé að fækka Bandaríkjamönnum og telur best að nota sprautur, efni í mat og vatni til að grisja hjörðina.
Þetta er heimurinn, fyrir þá sem þora að gá.

Comments
Powered by Facebook Comments