Mannbótasinni tekur gísl á Discovery

Mannbótasinni hefur tekið öryggisvörð sem gísl í höfuðstöðvum sjónvarpsstöðvarinnar Discovery í Silver Spring, Maryland, og krefst þess að stöðin skuldbindi sig til að “bjarga plánetunni” og “hætta að hvetja til frekari barnseigna,” enda séu börn sníkjudýr á jörðinni.

Fréttir herma að maðurinn hafi komið inn í bygginguna með sprengiefni og hafi tekið öryggisvörð í gíslingu.  Dan Fritz, höfuðsmaður og talsmaður lögreglunnar í Montgomery sýslu sagði í samtali við lögregluna að sprengisérsveitin sé á staðnum og hún sé að klekja út áætlun um viðbrögð.

Samkvæmt fréttum Washington Póstsins var yfirlýsing sett á netið þann 18. júlí síðastliðinn þar sem þess var krafist að innleitt verði hnattrænt mannbótaverkefni.  “Allir dagskrárliðir Discovery heilsurásarinnar verða tafarlaust að hætta að hvetja til frekari fæðinga á mann-sníkjudýrum og hætta að sýna fæðingar í dýrðarljóma,” segir pósturinn.  “Í þess stað á að hvetja til ófrjósemisaðgerða og stuðla að ófrjósemi.  Allir þær þættir sem nú hvetja til barnseigna verða að snúa við blaðinu og draga úr áhuga á slíku athæfi.”

Þessu mannhatri var póstað á vefsíðu savetheplanetprotest.com, og má lesa í heild á infowars.com, en vefstjórar mannbótasíðunnar hafa fjarlægt yfirlýsinguna, væntanlega í kjölfar aðgerða þessa tryllta mannvinar sem greinilega hefur ekki fengið memóið frá Bill Gates og félögum um það hvernig allir hans draumar eru að rætast án þess að fénaðurinn viti af því.

http://www.infowars.com/eugenicist-takes-hostage-at-discovery-channel-issues-anti-human-manifesto/

Mynd CC paulidin
Discovery byggingin
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments