Má bjóða þér LaserSjón og sjálfsvíg?

Á Íslandi eru starfandi tvö fyrirtæki sem bjóða upp á svokallaðar sjónlagsaðgerðir með laser. Á heimasíðum fyrirtækjanna er sagt að um sé að ræða hættulitlar aðgerðir með litlum aukaverkunum. Helst er gefið í skyn að viðkomandi eigi hættu á að fá verri rökkursjón, smá augnþurrk og einhverja bauga kringum ljós. Þetta sé þó lítið vandamál eins og fjöldinn af þeim sem hafa farið í svona aðgerðir sannar. Alvarlegar aukaverkanir eru nánast ekki til og tengjast aðalega klúðri í aðgerðinni sjálfri eða einhverjum þáttum sem engin gat séð fyrir.

Því miður er sá fjöldi sem þjáist verulega af þessum aukaverkunum og öðrum sem aldrei eru nefndar en þó vel þekktar miklu hærri en rannsóknir hagsmunaaðilanna sjálfra gefa til kynna. En í þeim rannsóknum er haldið fram að allt að 95% af þeim sem hafa farið í svona aðgerðir séu ánægðir með sjóngæðin. En hefðbundnar mælingar hjá augnlæknum mæla ekki svokölluð sjóngæði aðeins sjónskerpu.

Í myndbandinu hér fyrir neðan lýsir einn “hamingjusamur Bandaríkjamaður” sinni sýn á málið fyrir framan FDA. Allir fylgikvillarnir sem hann hefur fengið s.s. aukið magn augngruggs, ómögulega rökkursjón og ljósbauga frá helvíti hafa gert hann þunglyndan. Gott ef ekki sett hann í alvarlegar sjálfsvígshugleiðingar.

Þeir fylgifiskar sem Joseph Schnell lýsir eru þó algengir og aðeins smá brot af því sem fólk hefur fengið í gjöf frá þessum sölumönnum lyga og vona.

http://www.lasik-flap.com/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments