Má bara þreifa á höfði og hálsi

Pólitísk rétthugsun er furðulega Orwellskur tvískinnungur.  Á sama tíma og vestrænt fólk þarf að kveðja reisn sína og ganga niðurlútt í gegn um nektarskimun og þola þreifandi hendur á persónulegustu líkamshlutum sínum, allt í nafni öryggis og varna gegn hryðjuverkum, þá ganga múslímar hnarreistir í gegn og ekki má snerta þá, af ótta við að þeim finnist þeir teknir sérstaklega fyrir.

Ráðgjafanefnd um bandarísk-íslömsk samskipti hefur gefið út leiðbeiningar til múslíma sem ferðast með bandarískum flugfélögum, vegna frétta af “auknum þreifingum” öryggisliða TSA á flugfarþegum.

Þó almennt séu múslímar ekki teknir fyrir í öryggishliðum, heldur bara vestrænt fólk, þá gefur nefndin út þær leiðbeiningar til sinna kvenna (og barna?) að þær skuli klæða sig á hefðbundin múslímskan hátt (mest allt hold hulið) og ef þær eru teknar í “auknar þreifingar”, þá skuli þær tilkynna að það megi aðeins þreifa á höfði þeirra og hálsi.

Í febrúar gaf  Barátturáð Norðurameríku út fatwa tilskipun um að nektarskimar stríði gegn íslömskum sið.

“Það er augljóst brot gegn íslömskum sið að menn eða konur séu skoðuð nakin af öðrum mönnum eða konum,” segir í fatwinu.  “Í íslömskum sið er lögð mikil áhersla á haya (hógværð) og litið er á hana sem hluta af trúnni.  Kóraninn mælir með því að bæði menn og konur hylji persónulega staði líkamans.”

Verðum við öll að gerast múslimar til að halda einhverri reisn?

http://www.cnsnews.com/news/article/muslim-group-advises-women-wearing-hijab

Mynd CC tinou bao
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments