Lýðræðisnótt í New York um helgina

9 ára afmælishátið 11. sept 2001 verður haldin með glæsibrag um næstu helgi í New York. 

Reykjavík hefur sína “Menningarnótt”, þar sem Bakkusi og öðrum ómenningarlegum myrkraöflum er blótað af krafti um nóttina.  Reykjanesbær hefur svo sína “Ljósanótt”, þar sem myrkrinu er fagnað og allskyns dulspekilegar athafnir framkvæmdar til að heilsa valdi viljans í loftinu og öðrum myrkraöflum.

Í ár ber 11. september upp á laugardegi, og grasrótarsamtök sem berjast fyrir að sannleikurinn frá 11. september 2001 verði gerður opinber, ásamt aðstandendum þeirra sem létust og svo hjálparstarfsmönnum, sem eiga margir við gríðarleg heilsufarsvandamál að etja í kjölfarið, en fá litla samúð frá ríki og alríki, þessir hópar standa fyrir miklum hátíðarhöldum sem standa frá fimmtudegi til sunnudags, ekki ósvipað Ljósanótt Reykjanesbæinga.

Á sama hátt og Reykjavík og Reykjanesbær nota andheiti á hátíðir sínar, þá mætti nefna þessa hátið Lýðræðisnótt, enda hefur lýðræðið tekið gríðarlega dýfu frá atburðunum 11. september 2001.  En það er samt andheiti, því þeir sem standa að hátíðinni vilja snúa þróuninni við, gera þá ábyrga sem horfðu í hina áttina, eða hreinlega liðkuðu til, vinda ofan af alræðislegum lagabálkum, eins og “föðurlandslöggjöfinni” (patriot act).

Ef þú átt ekki leið til New York um helgina, þá getur þú gerst áskrifandi að beinni útsendingu á netinu frá helstu fundarhöldum hátíðarinnar, þar sem ýmsir áhugaverðir fyrirlesarar verða með erindi, svo sem Cynhia Mckinney (fyrrum þingmaður), Jason Bermas (kvikmynagerðamaður, Loose Change, Fabled Enimies og fleiri myndir), Richard Gage (Samtök arkitekta og verkfræðinga fyrir 11. sept sannleika), Wayne Madsen (blaðamaður, Madsen Report), Niels Harritt (eðlisfræðingur, stóð fyrir vísindalegri rannsókn sem sýndi fram á Nano-Thermite í ryki sem safnað var víðs vegar um New York á örlagadaginn), Cindy Sheehan (friðarsinni Bandaríkjanna númer eitt, missti son í stríðunum sem fylgdu), Major Mike McCormick (vann hjálparstarf og berst nú fyrir heilsugæslu fyrir lögreglu, sjúkralið og sjálfboðaliða sem unnu við eitraðar aðstæður 11. september 2001), Paul Craig Roberts (efnahagsráðgjafi Regans) og mun fleiri.

Áskriftin kostar að lágmarki 10 dollara en frjálst er að leggja meira til.  Allur ágóði af sölu þessara áskriftastrauma rennur til We Are Change, samtaka sem rekin eru án ágóða og til sjúkra hjálparstarfsmanna sem veiktust eftir störf sín í rykinu í september 2001.

http://liveonlocation.tv/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments