Hérna er frétt sem RÚV gleymdi en sem betur fer þá er ennþá lífsmark með Mogganum. Fyrir harða ESB sinna er allt tal um meiri samruna og minna sjálfstæði aðildarlanda algjört eitur. Þetta eru samt skilaboðin sem berast frá Evrópu og því ætti að vera ógjörningur fyrir íslenska ESB tossa að andmæla. En þegar ekki er hægt að andmæla eru hlutirnir einfaldlega þagaðir í hel.
Ekki er hægt að leyfa aðildarríkjum evrusamstarfsins að taka ákvarðanir sem varða evrusvæðið á eigin spýtur, sagði Herman Van Rompuy, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, í dag. Sagði hann að samstöðu þýða einhvern missi sjálfstæðis.
„Við getum ekki haft sameiginlegan gjaldmiðil og sameiginlega peningastefnu en látið aðildarríkin um allt annað,“ sagði Rompuy meðal annars í ræðu í bænum Louvain í dag.
„En þó er þetta það sem við höfum verið að upplifa. Það þarf að samhæfa stefnur og stofnanir innan Evrópusamstarfsins,“ sagði hann. „Samstaða er skylda, ekki bara réttur.”
„Samstaða innan evrusvæðisins snýst nú um nauðsyn og að komast af. Við þurfum að horfast í augu við að það þýðir missi sjálfstæðis fyrir alla, ekki aðeins fyrir þjóðirnar sem berjast í bökkum,“ sagði hann.


Comments
Powered by Facebook Comments