
- Öryggisgirðing: Þessi 17,5 km langa girðing skartar 900 eftirlitsmyndavélum og vekur frekar fangelsisstemmningu heldur en veislugleði. (C) Mike Wells
Mike Wells, Leikjavakanum, 12.4.2010
Meðal öryggisviðbúnaðar fyrir leikana í London, 2012, er bygging 17,5 km langrar 5.000 volta rafmagnsgirðingar, með 900 dag og nætur eftirlitsmyndavélum með 50 metra millibili. Við fyrstu sýn, væri hægt að fyrirgefa þér ef þú heldur að þú hafir dottið inn í aðra vídd og lent á jaðri Gúlags frá Sovéttímanum.
Verklagsreglur um rekstur eftirlitsmyndakerfis á ólympíuleikunum í London segja að
ógnin af óvinveittum einstaklingum sem reyni inngöngu gegn um jaðar svæðisins er talin réttlæta notkun eftirlitsmyndavéla
Eftirlitsmyndavélum verður beitt sem hluta af kerfi öryggisstjórnar á jaðri svæðisins
Notkun hernaðarlegra frasa, eins og óvinveittir einstaklingar og öryggiskerfi á jaðrinum dregur fram mótsögnina í ólympíuandanum og raunveruleikanum, milli ímyndar vinsamlegra íþróttaleikja og öryggisofsóknaæðisins sem sýnilegt er með einni augnagotu á ólympísku öryggisjaðargirðinguna. En það er stór og ábótasamur iðnaður sem sér fyrir græjum og rannsóknum til að kynda ofsóknaræðið sem einkennir nýja öryggishugarástandið, sem lýst er á eftirfarandi hátt af rithöfundinum Matt Carr:
Ný tegund hernaðarlegra framtíðarfræða hefur litið dagsins ljós og hún á jafn miklar rætur að rekja til heimsendalegra Hollywood mynda eins og til þeirra siða úr kaldastríðinu að undirbúa sig fyrir allskyns uppákomur. Þessar spár sem gerðar eru samkvæmt þessum framtíðarlegu hernaðarsýn eru oft framandi og fáránlegar og ætíð dystópískar (fyrrtar, ómannlegar, alræðislegar). Þær segja helstu ógnir við vestræn samfélög ekki aðeins vera frá ríkjum undir stjórn þrjóta, gjöreyðingarvopnum og hryðjuverkastarfssemi, heldur einnig frá þjóðernishyggju sem gæti blossað upp, baráttu um dvínandi auðlindir, innflytjendum, farsóttum, skipulagðri glæpastarfssemi, snöggum veðurfarsbreytingum og falli borga, þar sem samfélagsbrestur hefur orðið.

Æfing í samvinnu lögreglu og sérsveita gegn hryðjuverkum: Þessi æfing var svo raunveruleg, að fólk sem misst hefur útlimi var látið leika fórnarlömbin, eins og sjá má á blóðugum fótleggnum á myndinni. Háar sprengingar og skothvelli mátti heyra meðan á æfingunni stóð. Ég flúði vettvanginn eftir að foringi nokkur hótaði handtöku á grunni Reglugerðar um opinber leyndarmál, vegna myndatöku minnar.
Meðal annarra öryggisúrræða sem innleidd verða fyrir leikana í London 2012 verða lithimnuauðkenning, auðkenning með fingrafari eða höndum og öryggisverðir með árásar og leitarhunda. Nýr hugbúnaður er væntanlegur til að samþætta allar öryggismyndavélar London og mun sá búnaður geta kortlagt ferðir hvers og eins um borgina. Leitarkerfi fyrir fólk og faratæki mun geta séð í gegn um föt (nektarskimar). Flugherinn mun senda Reaper ómannaða flugöryggisþjarka, vopnaða leiserstýrðum flugskeytum og sprengjum, þar á meðal Vítiseld ™ flaugarnar sem Crazy-Horse og félagar notuðu í seinna myndbandinu frá Írak, þegar þeir gerðu árásina á hús sem þeir héldu kannski að væri tómt, en þar bjuggu 3 saklausar fjölskyldur. Á Thames á mun flotinn hreiðra um sig með glænýjann tundurspilli af Daring flokki, tegund 45, upp á 1 milljarð punda. Hann mun einnig búinn leiser stýrðum sprengjum og eldflaugakerfum sem geta hæft skotmörk af öllum stærðum.
Borgarlögreglan í London ætlar að nota fjarstýrðar smáflaugar með öryggismyndavélum (njósnaþjarkar) á leikunum. Líklega munu þeir versla dótið frá AirRobot UK, en á vefsíðu þeirra má lesa að…
AirRobot UK var valið sem UAV [njósnaþjarkur] til lofteftirlits á afhendingarserimóníu fyrir ólympíuleikana í London 2012 sem haldin var síðsumars 2008. Kerfið var sett upp við kringluna og Buckingham Palace svo neyðarliðar gætu séð hvað væri að gerast í rauntíma.
Innanríkisráðuneytið fullyrðir að…
Að tryggja öryggi á leikunum 2012 verður eitt af stærstu og flóknustu öryggisverkefnum sem Bretland hefur tekist á við
Þetta virðast ýkjur. Að tryggja öryggi Bretlands gegn þýskum nasistum í seinni heimstyrjöldinni og að koma í veg fyrir kjarnorkustyrjöld í kaldastríðinu myndi stemma við þessa lýsingu, en eins og Matt Carr hefur sagt… Á síðastliðnum árum hefur hernaðarmaskína Bandaríkjanna og Bretlands spúð út fjölmörgum skýrslum sem reyna að finna hið ómögulega þegar kemur að því að sjá fyrir sér framtíðarógnir við öryggi vesturlanda.
Lesið meira á vef Leikjavakans
London 2012: one big party or one big prison?
Comments
Powered by Facebook Comments