Lögreglu var skipað að draga sig í hlé

Mynd CC George Rex

Ónóg löggæsla varð til þess að almenningur vildi að herlög yrðu sett.

Paul Joseph Watson skrifar á Infowars.com 10 ágúst 2011.

Alveg eins og við greindum frá í gær byggt á frásögnum fjölmargra vitna, þá hefur komið í ljós að lögreglu var skipað að draga sig í hlé og láta Lundúnir brenna fyrstu óeirðanæturnar, aðgerðaleysi sem leiddi til þess að hræddur almenningur krafðist þess að herlið yrði kallað til, gúmmíkúlum og háþrýstibunum beitt ásamt útgöngubanni.

Á þriðjudag bentum við [infowars] á að slöpp vinnubrögð lögreglu sem mörg vitni greindu frá hafi gert ruplaralýði kleyft að láta greipar sópa um sjoppur og stórverslanir klukkustundum saman meðan lögreglan hafðist ekki að.

Samkvæmt vitni að upphaflegu óeirðunum í Tottenham þá sást lögregla “draga sig í hlé og leyfa óeirðaseggjum að valda usla,” stefna sem lögreglan hélt sig áfram við næstu nætur á eftir, þar til Cameron foringi sendi 10.000 aukaliða á vakt í London síðustu nótt.

Þetta hefur nú verið staðfest af heimildarmönnum innnan Skotland Yard sem segja lögreglu hafa fengið þær skipanir að draga sig í hlé og fylgjast með, jafnvel í þeim tilfellum sem óskammfeilin ofbeldisbrot voru framin gegn fólki og einkaeignum, tilskipun sem bannaði þeim að handtaka vandræðabelgina.

“Þeir virðast hafa fengið þær skipanir að reyna að halda ofbeldinu í skefjum , en ekki að taka brotamenn, þeir yrðu auðkenndir á eftirlitsmyndum síðar,” segir í frétt Daily Mail.

Lesið meira:

Police Were Ordered To Stand Down As London Burned

Why police were so soft on London looters: They ‘were ordered to stand and observe’ as capital burned (but in Manchester they were hunting looters within hours)

Lesið meira: http://www.dailymail.co.uk/news/article-2024412/London-riots-Police-soft-looters-ordered-stand-observe.html#ixzz1UeA5ITBi

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments