
Á dauða sínum átti breskur hjartasjúklingur von en ekki brjáluðum lögregluþjóni. Robert Whatley sem er vel stæður eftirlaunaþegi var stöðvaður af umferðarlögreglunni í Suður Wales haustið 2009 fyrir að vera ekki með öryggisbelti.
Eitthvað mislíkaði honum uppátækið og keyrði í burtu án þess að taka við sektinni. Lögreglan sætti sig ekki við þessi málalok og hóf eftirför á eftir Robert sem keyrði á undan lögreglunni á löglegum hraða í heilar 17 minútur áður en hann var stöðvaður í annað skipti.
Löggunni þótti þetta ekkert fyndið og einn vörður laganna réðast á bílstjórarúðuna með lögguprikinu sínu eins og hún hefði gert honum eitthvað. Annar löggukall hoppaði upp á húddið og reyndi að því virðist að nauðga annarri vinnukonunni sem mátti síns lítils enda löggi stór og stæðilegur.
Í viðtali við fjölmiðla sagði Robert Whatley að hann hefði varlað trúið því hvernig lögreglan lét. Það mætti halda að hann hefði rænt banka.
Comments
Powered by Facebook Comments