
Orwellskur mannréttindamálaráðherra Íslands, Ragna Árnadóttir, boðar nýja tegund réttinda, réttinda valdsins til að rannsaka einstaklinga að geðþótta án þess að neinn grunur leiki á að þeir hafi framið eða ætli nokkurntíma að fremja glæpi.
Til að slá ryki í augu geldinga í blaðaheiminum og flúortannburstaðs kindarfólks, þá vill hún í leiðinni taka upp “skýrt eftirlit” með geðþóttarannsóknum af þessu tagi, sem yrði þá í höndum “þingnefndar” eða “sérstakrar deildar innan dómsstóls”, eða bara bæði.
En hvað ættu slíkar eftirlitsnefndir að rannsaka?
Tökum dæmi. Þú ert settur undir eftirlit, vegna þess að þú ert leiðinlegur, eða hávær, eða hljópst á brott frá dóttur ríkisfulltrúa til að deita súludansstelpu. Þú kemst að því fyrir tilviljun, áður en þeim hafði tekist að safna nægum skít til að kæra þig og fangelsa og þú kærir það til “sérstakrar deildar innan dómsstóls.” Hún rannsakar málið og skoðar lagaumhverfið. Þar segir “Lögreglan hefur heimildir til að rannsaka einstaklinga án þess að grunur leiki á að þeir hafi framið eða ætli að fremja ákveðið brot.“ Málið er ljóst, þá grunaði að þú værir saklaus og því rannsökuðu þeir þig.
Fullkomlega löglegt, enda er þetta lögfesting geðþóttaákvarðana.
![]()
Nágrannarnir eru terroristar
Í alræðisríkjum eru allir sekir um eitthvað
Man einhver eftir hugsana lögreglunni?
Það verður þá nóg að gera.
En án gríns þetta frumvarp er kannski sakleysislegt.
EN Í HÖNDUM ÓVANDARÐA STJÓRMÁLAMANNA ER ÞAÐ STÓRHÆTTULEGT.
Ragna verður ekki dómsmálaráðherra endalaust.
Svá góðr
1
- “En hvað ættu slíkar eftirlitsnefndir að rannsaka?” – Útrásarmenn, sem allir þekkja og ganga um eins og ekkert sé. Og sérstakur saksóknari rannsakar og rannsakar. Taka á Hannes Smárason, Pálma Haraldsson, Ólaf Ólafsson o.fl. og yfirheyra þá.
Svá góðr
2