Smiley face
Loggi á hjoli hja Alþingi

Ljótar raddir á DV

Höfundur bjorn þann . Flokkur Kattasandur

DV greinir frá ferðasjóði Guðrúnar Jónu Jónsdóttur en Guðrún er öryrki eftir grófa líkamsáras á Lækjartorgi í október árið 1993.  Með hjálp sjóðsins og tveggja aðstoðarmanna fór Guðrún að sjá Madonnu í Lundúnum fyrir tveimur árum.  Að sögn var þetta alveg mögnuð upplifun og grét hún allan tímann af gleði.  Næst stendur til að sjá U2 á tónleikum í Chicago og hlakkar hún mikið til ferðarinnar.

Þessi saga snerti mig og alveg sérstaklega ummæli sem einhver Hólmfríður Jónsdóttir viðhafði um efni fréttarinnar.  Hólmfríði  finnst þetta reyndar frábært framtak en hneykslast samt á þessum utanlandsferðum og peningunum sem fara í þetta.  Það geti nú ekki allir leyft sér svona munað!  Hveruslags leiðindi eru þetta hjá Hólmfríði.  Skiptir það einhverju máli að aðrir geti ekki farið til útlandi í hjólastól með tvær hjálparhellur með sér.

Árið 1993 var Guðrún stödd ásamt vinkonu sinni á Lækjartorgi.  Rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt laugardags veittust tvær stúlkur að henni og lömdu í “kássu”.  Samkvæmt vitnum heyrðist Guðrún kjökra “Hvað er að ykkur”.  Meðan hún hraktist undan Heiðu Björk 16 ára og 14 ára vinkonu hennar.  Stelpa sem varð vitni að árásinni segir að Heiða og vinkona hennar hafi tekið í fléttur Guðrúnar svo hún varð að beygja sig og sparkað margsinnis í höfuð hennar.

Á forsíðu Morgunblaðsins frá 3. október kemur fram að Lögreglubíll var staddur á torginu nokkra metra frá árásarstaðnum.  Þar kemur einnig fram að Guðrún hafi sjálf gengið til lögreglunar og óskað eftir aðstoð.  Á leiðinni á slysadeild hafi hún kastað upp og hætt að anda.  Sem betur fer tókst lögreglunni að blása lífi í hana.

Rúmum mánuði seinna var dómur kveðinn upp yfir stúlkunum.  Þar kom fram að árásin var með öllu tilefnislaus.  Einhver stelpa hafði þó sagt Heiðu að Guðrún væri stelpan sem hefði lamið frænku hennar um sumarið.  Blindfull réðst hún síðan á fórnarlambið með sem varð fyrir miklum heilaskemmdum og lömun á öllum útlimum eins og fram kom í dómnum.  Alls óvíst væri líka um bata hennar og lífslíkur óvissar.

Fyrir þetta fékk Heiða Björk fimm ára dóm.  En Guðrún þarf að berjast fyrir lífu sínu hverja einustu mínútu með aðstoðarfólk á fullum launum.  Rúsínan í pylsuendanum er síðan grein sem Guðrún skrifar í Morgunblaðið laugardaginn 10. mars 2001 undir fyrirsögninni “Er lögreglan upp á punt?”  En þar segir:

Og viti menn, a.m.k tveir lögreglumenn voru nærri og gerðu ekkert.
Einhvern tíma heyrði ég að lögreglumennirnir hefðu sagt að þeir
hefðu bara haldið að ég væri svona drukkin og bara að fíflast eitthvað,

Auk þess sem ég æpti ótal sinnum á hjálp.

 

 

Lyklar:,

bjorn

Er launamaður og áhugamaður um mat og fjallgöngur niður brekku.

Skrípó