Smiley face
saltadur.cc.JD.Hancock

Lítil saltneysla jafn slæm og mikil

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fólk, Neytendamál

Teymi kanadískra vísindamanna undir stjórn Martins J. O’Donnels gerði rannsókn á tengslum saltneyslu og hjartaáfalla.  Niðurstöður benda til þess að ráðlagður dagsskammtur yfirvalda sé of lágur.

Of mikið er óhollt, en of lítil saltneysla virðist einnig auka líkurnar á alvarlegum áföllum eða dauða af völdum hjartasjúkdóma.  Þetta eru niðurstöður kanadísks rannsóknarteymis sem fylgdist með heilsufari og saltneyslu 28.880 manna úrtaks fólks sem var talið í aukinni áhættu á því að fá hjartaáföll, heilablóðföll eða hjartastopp.  Flestir höfðu kransæða eða hjartasjúkdóma, sykursýki eða aðra áhættuþætti.  Rannsóknin stóð yfir frá nóvember 2001 til mars 2008.

Of mikil saltneysla var tengd auknum dánarlíkum vegna hjartasjúkdóma, en það átti aðeins við saltneyslu sem var mun hærri en gildir um flesta kandabúa.  Lægst áhætta virstist vera meðal þess hóps sem neytti salts í svipuðu magni og meðalkanadamaðurinn gerir.  En það magn er miklu hærra en ráðlagður dagsskammtur.

“Nær öllum er ráðlagt að draga úr saltneyslu sinni,” sagði Dr. Martin O’Donnel, klínískur prófessor í læknisfræði við McMaster háskóla í Hamilton, Ontario.

Aðrar rannsóknir hafa bent til þess að lækka megi blóðþrýsting hóflega með því að minnka saltneyslu.  “En það hafa engar stórar rannsóknir með slembiúrtaki  verið gerðar til að sýna fram á það með óyggjandi hætti að minni saltneysla komi í veg fyrir hjartaáföll og heilablóðföll,” sagði O’Donnel.

Þessi rannsókn ætti að vekja fólk til umhugsunar um það hvort yfirvöld og stofnanir hafi endilega alltaf rétt fyrir sér.  Það virðist oft vera að almenn viðhorf innan hópa sérfræðinga séu bábiljur sem þeir hafa lært og endurtaka hver við annan, gera rannsóknir sem hannaðar eru til að styðja við gildandi viðhorf, eða massa gögnin þar til þau passa.

Heilsuvörðurinn Mike Adams hefur til dæmis oft bent á að engar almennilegar rannsóknir séu til sem sanni virkni bólusetninga við flensu.  Aðrir benda á að engin lyfjafyrirtæki (og þar með engir fjársterkir aðilar) hafi áhuga á að gera rannsónknir sem bera saman heilsu bólusettra og óbólusettra barna.  Eða virkni vítamína eða annarra þátta í heilbrigðri fæðu á móti lyfjum og bóluefnum.  Það hefur enginn beinan hag af slíkum rannsóknum, því ekki er hægt að fá einkaleyfi á D vítamíni eða hrámjólk, svo eitthvað sé nefnt.

http://www.montrealgazette.com/health/salt+intake+also+linked+heart+disease+deaths+Study/5751888/story.html

http://jama.ama-assn.org/content/306/20/2229.abstract?sid=b5138b82-bbf5-4e0f-a184-ed2522215498

Mynd CC JD Hancock

Lyklar:, , ,

Gullvagninn

Miðaldra fjölskyldumaður sem sinnir jaðarblaðamennsku í frístundum. Hóf ritferilinn á moggablogginu í ágúst 2007, en skipti yfir á Kryppu þegar vefritið var stofað í janúar 2010.

Skrípó