Yfirvöld í breska smábænum Newark neita lappalausri stríðhetju að leggja í bílastæði fyrir fatlaða. Rök bæjarfélagsins eru þau að Johno Lee eigi kannski eftir að fá bót meina sinna. Samkvæmt læknum er það afskaplega fátítt að fólki vaxi nýir útlimir og er því afstaða bæjarfélagsins óskiljanleg.
Þrátt fyrir óréttlætið leggur Johno í bílastæði merkt fötluðum þegar hann notar hjólastól eða treystir sér ekki til að ganga mjög langt. Fyrir uppátækið hafa bæjaryfirvöld sektað hann um litlar 150.000 krónur. Talsmaður bæjarfélagsins lét hafa eftir sér að málið væri í skoðun og farið yrði eftir öllum lögum og reglum.
Spurning hvort það vanti ekki eitthvað í þessa auglýsingu?
Comments
Powered by Facebook Comments