Landtökumenn lemja gamla konu

Í tilefni af nýjum friðarviðræðum milli Palenstínumanna og Ísraela er nauðsynlegt að skoða samhengið. En svokallað friðarferli hefur staðið yfir áratugum saman án sýnilegs árangurs. Hugmyndir Palenstínumanna um eigið land passa illa við útþennslustefnu Ísraels. Ef Ísrael hefði áhuga á friði og sjálfstæðu Palenstínulandi væri það veruleikinn í dag. Allir síðustu forsetar Bandaríkjanna hafa lofað Palenstínumönnum sjálfstæðu landi áður en þeir hættu. Svikin loforð og skrípaleikur er það eina sem er í boði fyrir Palenstínumenn.

Hér má síðan sjá tveggja ára fréttamynd af landtökumönnum sem er illa við nágranna sína. En í þessari frétt kristallast raunveruleg stefna Ísraels gagnvart nágrönnum sínum. Bara lemja þá til hlýðni og sérstaklega börn og gamlar konur.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,