Laminn og rændur á Laugavegi um hábjartan dag

Um hábjartan dag á Laugaveginum var ég staddur til að mynda götumyndir og búðarglugga.  Ferðin byrjaði ekkert sérlega vel.  Fyrir framan miðakassann stóðu tveir karlmenn og reyndu að átta sig á hvernig tækið virkaði.  Inn fór kortið og ekkert gerðist.  Reyndu þetta sagði sá stóri og inn fór kortið aftur.  Eftir næstum 10 mínútur birtist kvittun og ég gat haldið mína leið.

Síðan hitti ég nokkra brosandi túrista með myndavélar.  Einum þeirra fannst ég greinilega kynlegur kvistur og smellti vænni mynd í áttina til mín.  Ég þakkaði pennt fyrir mig og smellti til baka.  Því miður er ég óttalegur klaufi í þessum myndabransa og túristinn var allur úr fókus.

Ég stillti vélina á meiri hraða og hélt áfram að taka myndir.  Þennan dag voru flestir brosandi á Laugaveginum.  Sólin skein og bílarnir mjökuðust áfram.  Þarna voru ömmur með barnabörnin.  Mömmur í búðaleit og kallar á hraðferð.  Niðursokkinn í eigin hugsanir sá ég þrjár brosandi stelpur æða í áttina til mín.  Án þess að spyrja þær leyfis frekar en alla hina smellti ég einni mynd.

Eftir nokkra metra kallar ein “Hann tók myndir af okkur”.  Ég hélt mínu striki en vissi ekki fyrr en ein af þessum dömum rífur í ermina á mér og hvæsir hvað ég þykist vera að gera.  Mér brá verulega en þetta var bara létt upphitun því það sem kom á eftir hélt ég að gerðist bara eftir fjögur á laugardagskvöldum.

Þegar ég neitaði að leyfa dömunum að fikta í myndavélinni og gerði mig líklegan til að halda á brott stökk önnur fram fyrir og reyndi að taka myndavélina af mér.  Hófust smá handalögmál þar sem ég skýldi vélinni með vinstri hendinni og reyndi að ýta til baka með þeirri hægri.

Kallar þá sú þriðja með mikilli geðshræringu yfir mannhafið að það sé verið að lemja vinkonu sína.  Á sömu sekúndu kemur aldraðar herramaður prinsessunum til hjálpar og miðaldra riddari með stríðsglampa í augunum.  Síðan fæ ég spark í lærið og hálstak frá riddaranum aftan frá.  Þó ég sé heljarmenni að burðum og heilir 160 cm að viðbættum 67 kílóum af blandaðri fitu mátti ég ekki við margnum.

Ég skell á gangstéttarhelluna og missi meðvitund því miðaldra riddarinn var búinn að ná ansi góðu hálstaki og lá ofan á mér.  Kannski hélt hann að hálft konungsdæmið fylgdi með prinsessunum.  Hann tók allavega hetjuhlutverkið sitt mjög alvarlega.

Hvort einhver stoppaði riddarana eða hringborðið kallaði þá náði ég andanum smátt og smátt.  Liggjandi í götunni tók ein daman myndavélina og þurrkaði út þessa örlagaríku mynd.  Með fyrirlitningatón og smá hæðnisglott í framan bætti hún við: “Þetta var nú ekki erfitt!!”

Þegar heim var komið tók ég eftir að seðlaveskið mitt var ekki í jakkanum.  Hvort riddararnir tóku það í sárabætur fyrir hálft konungsdæmið eða prinsessurnar bara vel æfðir vasaþjófar verður sennilega aldrei leitt í ljós.   Nema vitni gefi sig fram og beri kennsl á þessar þrjár dömur.

(Þrjár prinsessur eða framtíð Íslands?)

Tengt efni:

16 ára fangelsi fyrir götuljósmyndun?
16 ára fangelsi fyrir götuljósmyndun?
Hin nýja heimsmynd minnir á Sovétið

Stóra-Bjarnarmálið
Stóra-Bjarnarmálið
Greiningadeild Kryppu leggst yfir málið

Tekin með 30.000 nektarmyndir
Tekin með 30.000 nektarmyndir
Ríkið er siðblindur pervert, óþarfi að treysta því

Götuljósmyndun er góð skemmtun
Götuljósmyndun er góð skemmtun
…en ekki sakar að vita hvað má og hvað má ekki

Ung- Vinstri grænir bjóða upp á götuslagsmál og pizzur
Ung- Vinstri grænir bjóða upp á götuslagsmál og pizzur
Ungt fólk í stjórnmálum er oft eldheitt og ástfangið af skoðunum sínum

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments