
Um hábjartan dag á Laugaveginum var ég staddur til að mynda götumyndir og búðarglugga. Ferðin byrjaði ekkert sérlega vel. Fyrir framan miðakassann stóðu tveir karlmenn og reyndu að átta sig á hvernig tækið virkaði. Inn fór kortið og ekkert gerðist. Reyndu þetta sagði sá stóri og inn fór kortið aftur. Eftir næstum 10 mínútur birtist kvittun og ég gat haldið mína leið.
Síðan hitti ég nokkra brosandi túrista með myndavélar. Einum þeirra fannst ég greinilega kynlegur kvistur og smellti vænni mynd í áttina til mín. Ég þakkaði pennt fyrir mig og smellti til baka. Því miður er ég óttalegur klaufi í þessum myndabransa og túristinn var allur úr fókus.
Ég stillti vélina á meiri hraða og hélt áfram að taka myndir. Þennan dag voru flestir brosandi á Laugaveginum. Sólin skein og bílarnir mjökuðust áfram. Þarna voru ömmur með barnabörnin. Mömmur í búðaleit og kallar á hraðferð. Niðursokkinn í eigin hugsanir sá ég þrjár brosandi stelpur æða í áttina til mín. Án þess að spyrja þær leyfis frekar en alla hina smellti ég einni mynd.
Eftir nokkra metra kallar ein “Hann tók myndir af okkur”. Ég hélt mínu striki en vissi ekki fyrr en ein af þessum dömum rífur í ermina á mér og hvæsir hvað ég þykist vera að gera. Mér brá verulega en þetta var bara létt upphitun því það sem kom á eftir hélt ég að gerðist bara eftir fjögur á laugardagskvöldum.
Þegar ég neitaði að leyfa dömunum að fikta í myndavélinni og gerði mig líklegan til að halda á brott stökk önnur fram fyrir og reyndi að taka myndavélina af mér. Hófust smá handalögmál þar sem ég skýldi vélinni með vinstri hendinni og reyndi að ýta til baka með þeirri hægri.
Kallar þá sú þriðja með mikilli geðshræringu yfir mannhafið að það sé verið að lemja vinkonu sína. Á sömu sekúndu kemur aldraðar herramaður prinsessunum til hjálpar og miðaldra riddari með stríðsglampa í augunum. Síðan fæ ég spark í lærið og hálstak frá riddaranum aftan frá. Þó ég sé heljarmenni að burðum og heilir 160 cm að viðbættum 67 kílóum af blandaðri fitu mátti ég ekki við margnum.
Ég skell á gangstéttarhelluna og missi meðvitund því miðaldra riddarinn var búinn að ná ansi góðu hálstaki og lá ofan á mér. Kannski hélt hann að hálft konungsdæmið fylgdi með prinsessunum. Hann tók allavega hetjuhlutverkið sitt mjög alvarlega.
Hvort einhver stoppaði riddarana eða hringborðið kallaði þá náði ég andanum smátt og smátt. Liggjandi í götunni tók ein daman myndavélina og þurrkaði út þessa örlagaríku mynd. Með fyrirlitningatón og smá hæðnisglott í framan bætti hún við: “Þetta var nú ekki erfitt!!”
Þegar heim var komið tók ég eftir að seðlaveskið mitt var ekki í jakkanum. Hvort riddararnir tóku það í sárabætur fyrir hálft konungsdæmið eða prinsessurnar bara vel æfðir vasaþjófar verður sennilega aldrei leitt í ljós. Nema vitni gefi sig fram og beri kennsl á þessar þrjár dömur.
(Þrjár prinsessur eða framtíð Íslands?)
Tengt efni:
![]()
16 ára fangelsi fyrir götuljósmyndun?
Hin nýja heimsmynd minnir á Sovétið
![]()
Stóra-Bjarnarmálið
Greiningadeild Kryppu leggst yfir málið
![]()
Tekin með 30.000 nektarmyndir
Ríkið er siðblindur pervert, óþarfi að treysta því
![]()
Götuljósmyndun er góð skemmtun
…en ekki sakar að vita hvað má og hvað má ekki
![]()
Ung- Vinstri grænir bjóða upp á götuslagsmál og pizzur
Ungt fólk í stjórnmálum er oft eldheitt og ástfangið af skoðunum sínum


Sammála Önnu hér að neðan;
Fólk getur ekki vænst einhverrar “friðhelgi einkalífs” þegar það er statt úti á götu. Þetta er ekki einkagangstétt þessara kvenna og þær geta ekkert sett út á það þó að einhver taki mynd af þeim. Þær voru á almannafæri. Hvernig dettur fólk í hug að það eigi eitthvað einkalíf þar?
Að elta mann og heimta að hann eyði út mynd af þeim er bara hlægilegt. Hvað halda þessar manneskjur að þær séu? Að rífa í hann og hvetja til barsmíða er svo beinlínis glæpsamlegt.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
47
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
42
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
53
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
51
Fólk getur ekki vænst einhverrar “friðhelgi einkalífs” þegar það er statt úti á götu. Þetta er ekki einkagangstétt þessara kvenna og þær geta ekkert sett út á það þó að einhver taki mynd af þeim. Þær voru á almannafæri. Hvernig dettur fólk í hug að það eigi eitthvað einkalíf þar?
Að elta mann og heimta að hann eyði út mynd af þeim er bara hlægilegt. Hvað halda þessar manneskjur að þær séu? Að rífa í hann og hvetja til barsmíða er svo beinlínis glæpsamlegt.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
57
Bara svo að ALLIR sem lesa þetta fái að heyra sannleikann, þá er 100% löglegt að taka myndir af fólki á almannafæri, sama hverjar aðstæður eru. MyndBIRTING getur svo hlútið öðrum reglum sé hægt að færa rök fyrir að birtingin sé meiðandi eða niðrandi þeim sem á myndinni birtast. Þetta er mjög einfalt mál í raun, hvað viðkemur ljósmynduninni. Annað mál er með líkamlegt ofbeldi. Sé slíku beitt er enginn vafi á að upphafsmaður slíks er í órétti.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
52
Daníel: Ég er gæti ekki verið meira sammála þér! Viðbrögð beggja aðila eru of öfgakennd og harkaleg. Þær að vera með vesen yfir myndatökunni, því það er alls ekkert slæmt við þessa mynd (þó þær hefðu kannski frekar vilja vera í partý-gallanum þegar hún var tekin) og svo hann að láta eins og hann heyri ekki í þeim þegar þær vilja ræða við hann og vilja svo ekki sýna þeim myndina. Ég meina hvers vegna er ekki hægt að ræða málin eins og fullorðið siðmenntað fólk?? Báðir aðilar ættu að skammast sín fyrir neikvæða viðleitni í garð náungans!
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
24
það breytir engu hver gerði hvað og hver byrjaði, lögum samkvæmt má mynda hvern sem er í almenningi, sama hvort ein eða fleirri presónur þekkjast á myndinni, það þarf ekki að biðja um leyfi fyrir myndatökunni og þau sem mynduð eru hafa ekkert um það að segja hvort þau séu mynduð eða ekki, ef þau eru í almenningi þá má mynda þau sama hvað þau segja !
birting myndanna er líka leyfileg hvar og hvenær sem er svo lengi sem birting þeirra á ekki að afla tekna og eru ekki nýttar í auglýsingar eða annað atvinnutengt efni.
það að stelpurnar skyldu yfir höfuð setja útá myndatökuna er hallærislegt, þetta eru venjulegar stelpur í að virðist góðu skapi á röltinu, ekkert við myndina er slæmt fyrir þær, að þær skyldu leggja hönd á ljósmyndarann er hinsvegar lögbrot, að hann hafi varið sig með því að sjá tilbaka er ekki mjög karlmannlegt og hann ætti að skammast sín fyrir að slá til stelpu, þessir tveir gaurar sem komu að þessu voru ótengdir þessu máli og brugðust allt of harkalega við miðað við æðstæður og á hiklaust að kæra þá. bæði stelpurnar og ljósmyndarinn ættu að skammast sín fyrir framkomu sína og ættu að biðjast afsökunar á opinberum vettvangi og í eigin persónu hvort við annað.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
32
Ás: Ég er klárlega ekki ná þessu
Jóna: Ég er reyndar búin að lesa þessa grein hér að ofan nokkru sinnum og þessa líka: http://kryppa.com/ung-vinstri-gr%C3%A6nir-bjo%C3%B0a-upp-a-gotuslagsmal-og-pizzur/
Það kemur auðvitað fram í greininni að ofbeldið fellur í hlut “riddaranna” en í raun ekki stúlknanna heldur handalögmál í byrjun þessa atviks. Það sem ég átti við var að ég ætti bágt með að trúa að þessar stúlkur vildu þessum ljósmyndara illt þó þær væru ekki hrifnar af því að vera ljósmyndaðar og ég skil ekki hvers vegna það þykir tiltökumál að eyða myndum ef viðfangsefnið biður um það. En er ekki málið að ráðast þá á þessa riddara frekar en þessar stúlkur!?! Það voru jú þeir sem gengu í skrokk á honum! Björn setur upp myndlíkingu í greininni og setur þess menn (hvort sem um er að ræða ógæfumenn eða ekki)í hlutverk riddara, sem koma inní senuna eins og bjargvættir. Í frásögn stúlkunnar kemur fram að þær voru ekki endilega hrifnar af þessari björgun.
Ég er ekki að reyna að verja neinn í þessu máli, þar sem ég hef enga tengingu við þetta fólk. En mér finnst að svona lagað eigi heima á öðrum vettvangi en þessum hér. Einnig finnst mér greinin þar sem hann tekur þess Höllu fyrir, bara vera gerð til þess að vera með ærumeiðingar og mannorðs svertingar. Þar er máluð mjög svört mynd af henni sem manneskju og dæmi tekin langt aftur í tíman til þess að leggja áherslu á það hversu afvegaleidd manneskja hún. Ég meina til hvers? Hvers vegna ekki bara að kæra og láta vefmiðlana í friði því svona er hún ekki bara komin með alvarlega ásökun á hendur sér, því einnig er búið að sverta mannorð hennar og vera með rógburð um hana á netinu og þar sem hér er um að ræða orð gegn orði er hún komin með mál í hendurnar sem hún getur notað gegn honum og kært hann fyrir rógburð, ærumeiðingar og mannorðs svertingar!
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
20
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
16
Þessar stelpur eru greinilega ekki í lagi. Beita Björn ofbeldi til að reyna að ná af honum myndavélinni þegar hann vill ekki stoppa fyrir þeim og ræða málin. Ég held að hann hafi bara haft góða ástæðu til að stoppa ekki svona miðað við lætin í þeim. Kannski æptu þær: “Stoppaðu!”, “Hvað ertu að gera!”, “Þetta máttu ekki!”.
Síðan segir Þórhildur í Pressunni að vinkona sín hafi tekið um hendina á honum og varla var það til að dansa tangó. A.m.k. ekki svona tangó.
Þessar vinstrisinnuðu stjórnmálastelpur telja það greinilega vera skyldu sína að veitast að fólki sem fyrir í taugarnar á þeim. Ef einhver vill ekki tala við mig reyndi ég ekki að halda honum og toga í hann.
Sjálfsagt flokkast þetta bara undir venjuleg fundarsköp hjá Vinstri grænum sem þessi Þórhildur Halla hefur margoft kennt þar á bæ.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
43
Ég sé ekki betur en Sigrún hafi rétt fyrir sér og að þetta hafi litið illa út á tímabili fyrir Björn. En Björn er greinilega meðvitaður um þetta því hann talar um prinsessur og riddara sem koma til hjálpar.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
5
Sigrún: Maður hefur RÉTT til að taka myndir af öllu og öllum á almannafæri. Af hverju ert þú að álása fórnarlambi ofbeldis fyrir að hafa ekki gefið eftir sinn lagalega rétt? Hvað þú sjálf gerir þegar þú tekur myndir er þitt mál – þitt einkamál. Þú getur ekki yfirfært það yfir á aðra.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
12
Hvernig væri að Helena læsi greinina en ekki bara þessa æsifrétt hjá Pressunni. Ég sé ekki að þessi Björn skrifi neitt um að stúlkurnar hafi lamið hann í klessu. Hann talar um handalögmál og Þórhildur vill meina að hann hafi slegið vinkonu sína og sparkað í hana og hún haldið í hann og eitthvað sem hún kallar ryskingar.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
8
Sæll Björn.
Eitt er víst að myndin er af stúlkunum og engu öðru. Þær eru aðalmyndefnið. Ef þeim er illa við að þeim alls ókunnugur maður eigi mynd af þeim (sem ég skil hjartanlega, t.d. ef litið er til þess hvernig farið hefur verið með fólk á veraldarvefnum í gegnum tíðina) er þá ekki réttlátt að virða það?
Ég er sjálf ljósmyndari og tek mannlífsmyndir, en myndi að sjálfsögðu bregðast vel við ef einhver sem ég þekki ekki en hefði smellt mynd af bæði mig um að eyða mynd af sér; það er engin ástæða fyrir neinn að treysta mér fyrir því að nota ekki mynd af sér í eitthvað sem er manneskjunni á móti skapi, enda ég bláókunnug. Mjög skiljanlegt.
Mér þykir leitt að mennirnir tveir virtust hlaupa inn í málið með látum án þess að kynna sér það eins og hægt var fyrst, en ertu viss um að það hafi ekki getað litið út fyrir utanaðkomandi eins og þú hafi verið að ráðast að stúlkunum?
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
25
Helena: Þú hefur á réttu að standa – þú skilur þetta ekki
Heit umræða. Hvað finnst þér?
10
Það er eitt að fara með svona mál til lögreglu en að vera með ærumeiðingar og rógburð á veraldarvefnum er eitthvað sem á ekki að eiga sérstað. Ef maður á í útistöðum við einhvern á maður að eiga það við þann aðila en ekki birta svona færslu ásamt myndum, nöfnum og svona hrikalegum ásökunum!! Hvernig var það annars, var þessari mynd ekki eytt út af myndavélinni þinni? Hvernig stendur á því að myndin er enn til og fyrir allra augum???
Það er staðreynd að fólk er misjafnlega viðkvæmt fyrir myndatöku og ekki hjá því komist. Sumir eru ólmir í að sitja fyrir á meðan aðrir flýja af hólmi um leið og þeir sjá myndavél á lofti. Það má vera að sumir eigi við einhverja minnimáttarkennd og vandamál að stríða t.d. í sambandi við útlit sitt og vilji þess vegna ekki vera á myndum og verður maður að taka tillit til þess, hvort sem maður er Jón eða Séra Jón. Þó það sé leyfilegt samkvæmt lögum að taka myndir af fólki á almannafæri er það almenn tillitsemi, kurteisi og virðing við náungan, að virða það að hann vilji ekki að einhver Pétur eða Páll úti í bæ sé að smella af honum mynd í tíma og ótíma. Ef svo óheppilega vill til að “myndefnið” hafi ekki áhuga á að láta mynda sig og hafi verið meðvitað um myndatökuna ætti ekki að vera neitt tiltökumál að ræða málin, biðjast afsökunar og eyða myndinni, sérstaklega ef ekki er um að ræða ljósmynd sem gæti unnið til verðlauna. Einnig væri hægt að setja dæmið upp svona: Var í lagi að ég tók mynd af ykkur? eða jafnvel: Fyrirgefið mér, ég er bara að taka myndir af mannlífinu í bænum, má ég eiga myndina af ykkur? Ef “myndefið” segir já þá er það awesome en ef svarið er neikvætt verður maður bara að bíta í það súra epli og eyða myndinni. Ef þær hins vegar hefðu ekki tekið eftir þessu þá væri þessi steypa ekki í gangi. Bottomline: Reyndu í framtíðinni að vera minna áberandi!
Að ganga í skrokk á einhverjum er auðvitað ekki ásættanlegt og finnst mér mjög leiðilegt fyrir þína hönd að þú hafir lent í þessu. Þú segist hafa misst meðvitund, var ekki einhver sem kom þér til hjálpar? Hvers vegna var lögreglan ekki kölluð á staðinn á meðan þetta átti sér stað ef þetta var svona svakalegt? Eða var þetta alls ekki svona slæmt?? Ég á bágt með að trúa að þrjár stúlkur hafi gengið í skrokk á fullorðnum manni sem gerði ekki meira en að smella af þeim einni mynd. Í alvöru talað, það bara gengur ekki upp! Það hlítur eitthvað meira að hafa átt sér stað eða hér er um ranga frásögn að ræða. Þessar stúlkur líta ekki út fyrir að vera mjög grimmar (alla vega ekki á myndinni) og get ég ekki séð á þeim að þær hafi ætlað að ganga í skrokk á einhverjum!
Ég get ómögulega skilið þetta!
Heit umræða. Hvað finnst þér?
27
“Nu er eg ad pæla…. afhverju eyddirdu ekki bara myndinni strax? Tha hefdi ollu verid lokid, frekar audvelt….”
Jóhanna: Lífið er auðvitað mjög einfalt ef maður lætur bara alltaf undan uppivösluseggjum og ofbeldismönnum og stendur aldrei á rétti sínum! Hugsaðu þér hvers konar ofbeldisþjóðfélag þetta væri ef allir hugsuðu eins og þú.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
11
thaer hafa lennt adur i thessu og myndirnar foru tha inna uglypeople.com, thaer gera allt til ad koma i veg fyrir thad aftur…
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
35
Skrítið að það megi ekki taka mynd af fólki í ungum vinstri gænum;)
Eg sem lögreglumaður man þegar fólk úr uvg var að taka myndir af okkur í óeirðum og ef maður setti út á það var það brjálað og sagðist alveg mega taka myndir
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
40
Pétur, það er kannski af því að þú ert sá eini sem finnst þau komment af viti?
Heit umræða. Hvað finnst þér?
10
Einu kommentin sem eitthvað vit er í hafa verið fjarlægð. Hvers konar rugl er það?
Heit umræða. Hvað finnst þér?
14
Þegar þú ert á almannafæri getur þú alltaf átt von á því að það sé tekin mynd af þér. Það yrði nú ansi slæmt ef maður þyrfti að fara biðja alla sem eru við Gullfoss, á sama tíma og maður sjálfur, um leyfi til að taka mynd af fossinum, því þau yrðu mjög líklega mörg inn á myndinni.
Þórhildur segir: Það er almennt séð ekki í lagi þegar fólk stelst til þess að taka myndir af öðru fólki. Þú veist ekkert hvað viðkomandi ætlar að gera við þær. Þetta er brot á einkalífi fólks og ég hef beðið ókunnugt fólk að eyða myndum af mér. Það hefur aldrei verið vesen.
Ef Þórhildur skoðar þessi komment þá vil ég segja þetta við þig: Þórhildur… það er almennt séð ekki í lagi að ráðast á fólk.
Á maður að ganga út um allt og gruna alla sem eru með myndavélar nálægt manni að ef þeir taki mynd af manni muni þeir nota hana til einhvers sem er illa séð?
Farðu þá bara aldrei útúr húsi eða vertu með skíðagrímu, hættu að reyna að klóra í bakkann, þú þarft að taka afleiðingum hegðunar þinnar.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
27
Nu er eg ad pæla…. afhverju eyddirdu ekki bara myndinni strax? Tha hefdi ollu verid lokid, frekar audvelt. Audvitad atti thetta aldrei ad leida til neinna ryskinga. Nu segja login ad thad se ekki ologlegt ad taka myndir af folki a fornum vegi en thad er almenn kurteisi ad eyda myndum strax ef vidfangsefnid bidur um thad! Thad er sjalfsogdu lika ologlegt ad radast a folk, en thad virdist adallega verid thessir bjanar sem hlaupa til bjargar an thess ad vita hvad er i gangi sem eiga sok i barsmidunum. Thu hefdir getad fordast allt vesen sjalfur med thvi bara ad syna almenna kurteisi og eyda myndinni strax.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
30
Já þessar stelpur líta út fyrir að vera algjörir bófar. Líklegast úr Breiðholtinu.
En í alvöru talað þá er greinilegt að þú ert að sleppa stórum hluta af hvernig þetta fór fram. Þú lætur eins og þú sért alsaklaus og ekkert sé eðlilegra en að taka myndir af fólki en harðneita þeim síðan að sjá myndina. Meiri segja ef ég tek mynd af vinum mínum þá leyfi ég þeim að sjá og ef þeir eru ekki sáttir þá hendi ég myndinni, hvað þá ef við erum að tala um ókunnugt fólk. Það kallast kurteisi.
Það er bara þannig að þessi mynd er mjög léleg og ekkert merkilegt við hana. Skil ekki af hverju þú vildir ekki leyfa þeim að eyða henni? og af hverju hlustaðiru ekki á þær þegar þær báðu þig um að stoppa? Ef ég hefði verið þær hefði ég haldið að þú værir með zoomið á og taka myndir af stöðum sem þú ættir ekki að taka myndir af.
Þar sem sögurnar eru tvær er ómögulegt að vita hvort byrjaði að rífa í hvern en ömurlegt er það ef þú varst laminn og rændur.
Hins vegar er þessi bloggfærsla mjög gott dæmi um það af hverju þú ættir ekki vilja láta ókunnugt fólk myndir af þér. Það gæti sett það á bloggið sitt og sagt hluti um mig sem ég vil ekki.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
41
Þú segir á blogginu þínu að stelpan hafi þurrkað út þessa örlagaríku mynd…. en þér tókst að setja hana þarna á bloggið þitt?
Heit umræða. Hvað finnst þér?
19
ef þetta hefðu verið sætar stelpur þá hefði þetta aldrei orðið neitt vandamál
– bara ljótu stelpurnar sem hafa miklar áhyggjur af því hvar myndirnar birtast :Þ
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
41
Bottomline!
Það er leyfilegt skv. lögum að taka myndir af fólki á förnum vegi, en ekki t.d. inn um glugga á heimahúsum.
Þannig er ljóst að rauðsokkurnar hafa rangt fyrir sér — Björn mátti taka af þeim myndir á miðjum Laugavegi.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
48
Skítt með hvað raunverulega gerðist – það er FÁRÁNLEGT að ætlast til þess að það megi ekki taka myndir af manni á almenningsstað. Hey stelpur, þið voruð á Laugaveginum og það er bara fokking í lagi að taka myndir af ykkur.
Helvítis viðkvæmni.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
40
Comment Bjarna bunu var ekki fjarlægt af kerfistjóra heldur “felur” kerfið sjálft ef nógu margir kjósa gegn viðkomandi. Myndataka af einstaklingum á almannafæri er heimil samkvæmt lögum. Einnig af fólki á Laugaveginum.
Ég sendi inn áðan athugasemd rétt áðan. Hún er farin út !
Ekki nægilega jákvæð fyrir Björn ljósmyndara. Ég legg til að þú Björn slökkvir á þessu „athugasemdakerfi” því að sóðaskapurinn hérna í texta er mikill og ósanngjarn í garð stúlknanna. Ég trúi ekki að ljósmyndarar séu í „fullum rétti” til að taka myndir af fólki út á götu ,- og birta svo einhverstaðar! Öll þessi atburðarás er ótrúleg en báðir hafa tilefni til að kæra !
Ekki vil ég að mitt andlit sé komið á einhverja vefsíðu !
Heit umræða. Hvað finnst þér?
33
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
9
Ég vil bara benda fólki að lesa þeirra hlið á málinu áður en þið commentið hér
http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/atok-a-laugarvegi-um-habjartan-dag-hann-sparkar-i-fotinn-a-henni-og-slaer-hana-utan-undir
Ég sé Björn að þú byðst afsökunnar og þykist ekki ætlað neitt slæmt með þessu, hvað ætlaðiru þá með þessu? Þú veist eins vel og allir hvernig er farið með fólk svona á netinu, hélt samt að fólk væri farið að passa sig að trúa ekki öllu sem er lesið eftir Lúkasmálið… og afhverju ertu þá að halda áfram að skrifa um Þórhildi?
Bloggið þitt hefur örugglega aldrei verið lesið eins mikið og þú ert að fíla athyglina
Heit umræða. Hvað finnst þér?
34
hvernig er það , er ekki fullkomlega löglegt að taka myndir á almannafæri af hverju sem er , hvort það er fólk eða eitthvað annað !
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
33
Það er ömurlegt að þú hafir verið barinn auðvitað, en mér finnst samt ekkert allt í lagi að rölta um og taka myndir af ókunnugum og finnst óþolandi þegar eitthverjir ókunnugir karlar eru að taka myndir af mér sem ég veit svo ekkert hvað verður af. Annars heitir stelpan fyrir miðju Lára, ég man ekki hvers dóttir því miður.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
20
Mig langar að vita hvort það er rétt sem stúlkan segir á Pressunni að þú hafir sparkað og slegið til einnar þeirrar, og ef svo er, varst þú fyrri til eða var það sjálfsvörn?
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
23
Sæll Björn.
Ég tæki aldrei aldrei svona áhættu; að taka mynd af ókunnugu
fólki án leyfis.
Þetta getur gerst akkúrat svona.. eins og það gerðist !
Stelpur sem vilja alls ekki að þær séu myndaðar, 0g vilja vita
fyrir hvern er þessi myndataka ? – hvar birtist myndin ?
Hef ekki mikla samúð með þér í þessu !
Heit umræða. Hvað finnst þér?
45
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
0
“Hafðir þú heimild til þess að taka mynd af þessum einstaklingum ?????
Áttir þú betra skilið ?”
Er fólk ekki í lagi?
Alveg sama hvor frásögnin er rétt þá á enginn skilinn að vera laminn fyrir það að taka ljósmynd niðri í bæ.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
31
Samkvæmt persónvernd og þeim lögum sem gilda í landinu var ljósmyndaranum heimilt að taka myndir af stelpunum á Laugaveginum svo framarlega sem þær voru þeim ekki til minnkunar eða lítilsvirðingar. Spurning hvort hann hefði ekki bara átt að eyða myndinni og leysa málið þannig.
En að reyna rífa vélina af honum er dáldið gróft!
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
26
Ótrúlegur munur á þinni frásögn og frásögn stelpnanna. Ég er ekki vissum að Stafán hafi rétt fyrr sér að þú hafir lögin alveg þín megin varðandi myndatökuna. Almennt má mynda hvar sem er en sé fólk persónugreinanlegt hugsanlega komin önnur staða. Sé fólk í hóp má mynda það þar sem þú ert ekki að taka mynda af neinum sérstökum. En þarna er verið að taka mynd af ákveðnum mannsekjum. Best væri að biðjast afsökunar á myndatökunni og eyða myndinni og reyna að enda þetta með sátt. Málið er bara orð gegn orði og ómögulegt að átta sig á hvor frásögnin er réttari.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
32
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
17
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
27
Ég vil þakka “Leif” fyrir hans innlegg í umræðuna. Það er rétt hjá honum að textinn í greininni endurspeglar mína upplifun og ég er ekki að skrifa fyrir hönd þessara dama. Sú sem svarar á Pressunni í dag er fullfær um það sjálf.
Ef þessar frásagnir eru bornar saman sést að það er hvorki himinn né haf á milli þeirra. Báðar geta verið réttar.
Síðan vil ég enn og aftur biðja þær afsökunar ef ég hef sært þær eða meitt. Og biðja alla sem rita hér að vera kurteisir. Líka kalla eins og Leif!
Hehe, ég ætla sko að passa mig að taka myndir af þessum drottingum ef ég sé þær út á götu, skora á aðra að gera slíkt hið sama.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
40
Leif: Nei, frásögnin er skólabókadæmi af manni með of mikið jafnaðargeð. Ertu nokkuð vinur stelpnanna?
Heit umræða. Hvað finnst þér?
7
Hver í veröldinni er svona trúgjarn á augljóslega ýkta sögu þar em mikilvægustu smátriðunum er sleppt?
Athugasemdirnar hérna eru í tugatali og flestar í þeim dúr að það er næstum ótrúlegt að þar fari manneskjur með viti.
Þið dæmið þessar stúlkur sekar um svívirðilegan glæp án þess að einu sinni hafa verið viðstödd og íhugið ekki einu sinni möguleikann að hér sé á ferðinni sár og reiður einstaklingur sem gerir allt til þess að hefna sín.,
Þetta hljómar nú eins og stórlygasaga þar sem öllum mikilvægustu atriðunum er sleppt, nema þeim sem eru höfundi í hag. Auðvitað.
Sár, reiður og hefnigjarn er sennilega það sem lýsir höfundi bloggsins best.
Ég þekki hvorki höfund né þessar stúlkur en mér finnst deginum ljósara að hér er ekki allt með felldu.
Frásögnin er skólabókardæmi af særðum einstakling sem augljóstlega hefur gert eitthvað af sér en vill ekki axla neina ábyrgð á því og býr til stórlygasögu í reiði sinni til þess að hefna sín.
Það voru nokkur vitni á staðnum.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
65
Sæll Björn, skelfilegt að svona skuli geta átt sér stað! Ég er áhugaljósmyndari og þetta vekur mann til umhugsunar hvort það sé virkilegra hættulegra að taka götuljósmyndir á götum Reykjavíkur en götum New York eða annara stórborga.
Ég vil samt vekja athygli á því að þú ert í fullum rétti og hefur lögin þín megin… þessar stelpur eru á opinberu svæði og það má ljósmynda þær sem og annað fólk. Þú átt EKKI að biðja þær afsökunar!!!
Þú átt að kæra þetta og fara með eins langt og hægt er, svona á ekki að líðast!
Baráttukveðjur,
Stefán
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
55