Smiley face
SDC11587

Lalli sjúkraliði kærður fyrir að mótmæla

Höfundur eythor þann . Flokkur Grasrótin, Lögregluríkið

19 september var Lalli sjúkraliði leiddur fyrir rétt þar sem hann var kærður fyrir að mótmæla og óhlýðnaðist lögreglu um að færa sig frá almennri gangstétt við sendiráðið yfir á hina gangstéttina við hús nágrannans.

 

Í réttarhöldunum átti Lalli að flytja málið sitt fyrst og vildi hann að málinu yrði vísað frá í staðinn fyrir sýknun, en dómarinn vildi meina að það væru lagatæknileg atriði á milli sýknunnar og frávísunnar.

Lalli mætir upp í ræðupúlt með hrúgu af gögnum þar sem hann og almenningur hefur lögin á sinni hlið í svona málum.

Fyrst nefnir hann að hann braut engin lög um óspektir þar sem það eina sem hann gerði var að halda á skilti sem stóð á elskum friðinn og stangast það ekki á 15 grein eða 19 grein lögreglulaga.

15. gr. Aðgerðir í þágu almannafriðar, allsherjarreglu o.fl.
1. Lögreglu er heimilt að hafa afskipti af borgurunum til að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu eða koma í veg fyrir yfirvofandi röskun til að gæta öryggis einstaklinga eða almennings eða til að afstýra afbrotum eða stöðva þau.
2. Í þessu skyni er lögreglu m.a. heimilt að taka í sínar hendur umferðarstjórn, banna dvöl á ákveðnum svæðum, svo sem með því að girða af eða hindra umferð um þau, taka í sínar vörslur hættulega muni, vísa á brott eða fjarlægja fólk, fyrirskipa stöðvun eða breytingu á aðgerðum eða starfsemi, fara inn á svæði í einkaeign og fyrirskipa brottflutning fólks af þeim.
3. [Ef uggvænt þykir að óspektir verði á mótmælafundi, í kröfugöngu eða á annarri slíkri samkomu á opinberum stað er lögreglu heimilt að banna að maður breyti andliti sínu eða hylji það eða hluta þess með grímu, hettu, málningu eða öðru þess háttar sem er til þess fallið að koma í veg fyrir að kennsl verði borin á hann.]1)
4. Óhlýðnist maður fyrirmælum lögreglu [skv. 2. og 3. mgr.]1) getur hún gripið til nauðsynlegra ráðstafana á hans kostnað til að koma í veg fyrir að óhlýðni hans valdi tjóni eða stofni almenningi í hættu.
5. Lögreglu er heimilt að krefjast þess að maður segi til nafns síns, kennitölu og heimilisfangs og sýni skilríki því til sönnunar.
6. Lögreglu er heimilt að hafa afskipti af málefnum sem samkvæmt lögum heyra undir önnur stjórnvöld ef það er talið nauðsynlegt til að stöðva eða koma í veg fyrir alvarlega röskun á almannafriði og allsherjarreglu og ekki næst til viðkomandi stjórnvalds eða aðgerðir af þess hálfu eru útilokaðar, þýðingarlausar eða fyrirsjáanlegt er að þær muni hefjast of seint. Tilkynna skal hlutaðeigandi stjórnvaldi um aðgerðir lögreglu svo fljótt sem auðið er.

19. gr. Skylda til að hlýða fyrirmælum lögreglu.
Almenningi er skylt að hlýða fyrirmælum sem lögreglan gefur, svo sem vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi lögum og reglu á almannafæri.

Hann bendir líka á að það eru lögreglumenn sem halda uppi lögum og reglum í þessu landi en ekki öryggisverðir.

2. gr.Tengsl við þjóðarétt.
Lögregla skal í störfum sínum hafa í heiðri þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist.
3. gr.Lögreglumenn.
Til lögreglumanna teljast þeir sem skipaðir eru eða settir til lögreglustarfs skv. 3. mgr. 28. gr. eða ráðnir tímabundið skv. 4. mgr. 28. gr.

Skýrsla lögreglu sýnir að hann var inn á almennri gangstétt EKKI inn á lóð og hann var fyrir framan hús, sagt var líka í skýrslunni að hann “angraði starfsmenn sendiráðsins” til að afsanna þetta þá vildi hann fá upptökur úr öryggismyndavélum sendiráðsins en þær bárust aldrei.

Varðstjórinn sem skipaði lögreglumönnum að handtaka Lalla braut 13 grein lögreglulaga.

13. gr.Almennar reglur.
1. Handhafa lögregluvalds ber að sýna árvekni í starfi sínu og kunna glögg skil á skyldum sínum og þeirri ábyrgð sem starfinu fylgir.
2. Handhafa lögregluvalds ber að rækja starfa sinn af kostgæfni og samviskusemi og ávallt gæta fyllstu hlutlægni og réttsýni. Þeir skulu gæta þess að mönnum verði ekki gert tjón, óhagræði eða miski framar en óhjákvæmilegt er eftir því sem á stendur. Ekki mega þeir beita sakaðan mann harðræði fram yfir það sem lög heimila og nauðsynlegt er til þess að vinna bug á mótþróa hans gegn lögmætum aðgerðum né á annan hátt beita hann ólögmætri þvingun í orði eða verki, svo sem með hótunum.
3. [Við framkvæmd starfa sinna skulu handhafar lögregluvalds bera á sér sérstök skilríki. Ráðherra ákveður útlit, efni og notkun lögregluskilríkja með reglugerð.

Engin lögmæt ástæða var því fyrir handtöku og Lalli segir að þetta sé ” sóun á skattpeningum”.

Lalli bendir líka á að hann var ekki að ógna lögreglu og vildi hann en og aftur ýtreka það með myndbandsupptökunum sem bárust aldrei.

Nú kemur sækjandi og flytur mál sitt og ætlast hann til þess að frávísunnarköfu verði hafnað og bendir hún á 19 og 41 grein lögreglulaga.

19. gr. Skylda til að hlýða fyrirmælum lögreglu.
Almenningi er skylt að hlýða fyrirmælum sem lögreglan gefur, svo sem vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi lögum og reglu á almannafæri.

41. gr. Refsingar.
Brot gegn 19.–21. gr. varða fésektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

Síðan til að toppa þetta er bent á 6 grein lögreglusamþykktar Reykjarvíkur laga.

6. gr.

Lögreglan getur vísað þeim mönnum í burtu af almannafæri sem með háttsemi sinni valda vegfarendum eða íbúum í nágrenninu ónæði.

Sama á við um þá sem valda óspektum, hættu eða hneykslan á almannafæri sökum ölvunar eða af öðrum ástæðum.

Þetta voru öll lögin og sönnunargögnin sem flytjandi hafði að segja.

Lalli bendir síðan til frekari sönnunarganga þar sem hnitin sem hann var handtekinn á benda á sýna sakleysi. Og biður hann um frávísun en dómarinn vill að hann biðji um sýknun.

Dómari segir að hæstiréttur hafi farið fram á geðrannsókn, en hann segir það vera alveg út í hött.

Dómari hafnar kröfu um frávísun og verður málið tekið fyrir dóm 10 Nóvember á fimmtudegi kl 9:15 í sal 201.

Lalli hress þrátt fyrir höfnun á frávísun

Endilega mætið ef þið getið þar sem Lalli er búinn að berjast fyrir því að geta sýnt í verki að hann og almenningur má mótmæla á almenningslóð. Og munið að ef fólk veit ekki réttindin sín þá hefur það enginn réttindi og stóri bróðir valtar yfir almenning út af fáfræði fjöldans!

http://www.althingi.is/lagas/139a/1996090.html

http://www.innanrikisraduneyti.is/raduneyti/starfssvid/logregla/logr_samth/nr/866

Lyklar:,

Skrípó