Flugvél American Airlines var lent á Keflavíkurflugvelli eftir að neyðarástand kom upp um borð vegna “efnagufa” í farþegaklefanum. Áhafnarmeðlimir voru á eldhússvæði vélarinnar þegar þeim varð illt í kjölfar tilkynninga um efnagufur í farþegarýminu.
Mbl talar um “bilaðan mótor í farangursrými” og “leka á eldsneyti” að því virðist, til þessa mótors. Það er furðulegt, því sjaldnast ganga mótorar innan skrokks flugvéla fyrir eldsneyti, rafmótorar kannski, en varla þotumótor í farangursrými?
En þetta gæti verið eðlilegur misskilningur, ef um rafmótor sem pumpar efnum í efnaslóðirnar hefur bilað og efnin lekið inn í farangursrýmið.
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Keflavíkurflugvallar Ohf hefur ekki staðfest þessa túlkun okkar á atvikinu.
Emergency Landing of AA Flight in Iceland
Frumlegt
Svá góðr
0
Nei í alvöru talað, þið eruð einfaldlega algjörlega úti á þekju. Það er ekki til sú samsæriskenning sem þið fallið ekki fyrir.
http://en.wikipedia.org/wiki/Chemtrail_conspiracy_theory
Svá góðr
0
Æi hr. Bilderberg, hann Matti er svoddan rebel, en hann er samt dúlla
Svá góðr
0
Hvernig væri að kynna sér aðeins málin áður en þú kallar fólk sturlað fyrir að benda á eitthvað alls ekki ólíklegt Matti.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
6
Manstu eftir því þegar borgarstjóri Moskvu sagði að það ætti ekki eftir að snjóa neitt þar í vetur vegna þess að þeir ætluðu að láta skýin snjóa áður en þau kæmu að borginni?
Eða þegar Kínverjar létu enda langt þurkatímabil á þurru svæði þar í landi með því að dreifa efnarákum sem orsaka regn?
Eða er þetta allt lygi og tilviljun ?
Heit umræða. Hvað finnst þér?
6
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
2