Kyrrahafseyjar stækka, engin hlýnun

Lágar og flatar Kyrrahafseyjar sem taldar voru með sterkustu áróðursvopnum veðurfarsbullukolla eru að stækka, en ekki sökkva.

Telegraph segir frá því að vísindamönnum til mikillar furðu sýni mælingar að sumar þessara eyja hafi vaxið um nær þriðjung á síðustu 60 árum.

Þetta kemur fram með athugunum á loftmyndum og gerfihnattamyndum með hárri upplausn á 27 Kyrrahafseyjum.  Aðeins fjórar af þeim höfðu smækkað, en 23 voru jafn stórar eða stækkuðu.

Sjö af þeim stækkuðu, ein um heil 30 prósent og þrjár þéttbýlar eyjar milli 12,5 og 30 prósenta.

Að sjálfsögðu kemst Telegraph svo að þeirri órökréttu niðurstöðu að um einhverskonar tilviljun sé að ræða og eyjarskeggar séu í gríðarlegri hættu vegna “veðurfarsbreytinga”.

Pacific islands ‘growing not shrinking’ due to climate change

Mynd CC notsogoodphotography
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: