Kúgaðasta þjóð í heimi

Skoðið þetta kostulega myndband, þarna grætur fólkið skipulega í röð og reglu.  Ef fólk skilar ekki grátskattinum, þá á það á hættu handtökur og jafnvel aftökur.

Stórstraumurinn er hrifinn af því hve Norður-Kóreubúar eru slegnir yfir fráfalli Kim Jong-Il harðstjórans.  Þetta eru sko alvöru meðspilarar, fyrirmyndar borgarar í ríki þar sem borgarar elska stjórnvöld og fórna öllu fyrir þau.

En það þarf ekki langt áhorf á ríkisvædda útsendu til að sjá hversu gervilegt þetta er.  Fólkið grætur í röðum, ferhyrndum þyrpingum.  Framhjá ganga svo aðrir sem hafa greitt sinn skatt, algerlega ósnortnir af þessum mikla þjóðarharmi.

Allt í plati, fólkið er þrælar, vinna þess í dag er að grenja og tilbiðja dauðan búk harstjóra, sem nú situr í betri stofu heljar og hefur fengið það herfilega verkefni að útskýra fyrir látnum vantrúarmönnum að helvíti sé raunverulegt.

Milljónir Kóreubúa hafa dáið úr hungri á síðustu 20 árum vegna ömurlegrar efnahags-ráðsstjórnar ríkissins.  Matur er enn munaðarvara og því ekki ólíklegt að þessir sorgarferningar séu mannaðir með smá matarverðlaunum, ef byssukjafturinn dugar ekki til.

En áður en þú dettur um koll af hlátri yfir því hvað þetta fólk er vitlaust, þá ættir þú kannski frekar að hugsa til þess með hryllingi, að þetta stjórnarform, alræði með járnhnefa, er einmitt á uppleið á vesturlöndum, og Óbama friðarforseti hefur einmitt nýlokið við að undirrita nýja öryggislöggjöf sem gerir leynilögreglunni kleift að handtaka hvern sem er án dóms og laga og halda þeim ótímabundið í leynifangelsum.

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments