
Í dag eru bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið með nánast sömu myndina, risastóra á forsíðu. Þar er kvennalið í knattspyrnu í sigurvímu, grettandi sig og í mikilli geðshræringu yfir hégóma.
Á sama tíma eru blaðamenn orðnir feimnir við að sauma að mikilmennum, vilja halda sínum skoðunum fyrir utan efnið, eða jafnvel verra, hafa engar skoðanir á neinu, nema kvennafótbolta og rembingsgrettum.
Fiður og kusk sem áður prýddi síðustu síður alvöru dagblaða, slúður, íþróttir, skemmtanir, það ratar nú í sífelt meira mæli á forsíðu.
Brauð og sirkusar?
Mynd CC gnews pics

Comments
Powered by Facebook Comments