Íslendingar eru fábjánar og þeir sem ekki eru með háskólagráður eiga að þegja, segir nýjasti þingmaðurinn okkar. Allir hlæja og hrista hausinn. Ekki vegna þess að þeir séu sammála honum heldur vegna þess að þingmaðurinn lofaði að gera meira gagn en gömlu þingmennirnir. Og þetta er það skásta sem maðurinn getur látið út úr sér, þjóðin er fífl nema hann sjálfur.
Annar þingmaður þjóðarinnar og fyrrverandi ráðherra lofaði að stjórnin segði af sér ef Icesave lögin yrði felld nú helgina. Ekkert bólar á afsögn og nú segir þessi sami þingmaður að staðan sé bara breytt og gömlu orðin marklaust hjal. Ekkert að marka það sem hann segir í hita leiksins því hlutir breytast svo hratt í pólitík.
Já, hún er fljót að breyta um skoðun þessi tík, pólitík. Sjálfur landshöfðinginn sem hefur barist fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum frá blautu barnsbeini segir nú að atkvæðagreiðsla um dýrasta lán ríkissjóðs fyrr og síðar sé bara ómerkilegur skrípaleikur. Hún ætli sko ekki að taka þátt í svoleiðis.
Formaður stærsta glæpaklíkuflokks landsins sem hefur alltaf verið á móti atkvæðagreiðslum þar sem þvi er komið við. Segir að þessi atkvæðagreiðsla sé einstaklega lýðræðisleg og það besta sem hægt er að bjóða þjóðinni upp á. Svo gott er þetta framtak að hann ætlar að hafa þjóðaratkvæðagreiðslur um allt framvegis. Síðast þegar fréttist var hann búinn að setja upp Facebook síðu um þjóðaratkvæðagreiðslur.
Eina sem er öruggt í dag það er að flest allt sem sagt er við þjóðina er bull og lygi. Eitt í dag og annað á morgun.

Hvur er það nafni minn sem átt er við, ef ég má upplýsa fávisku mína?
Svá góðr
0