Smiley face
© Jesse-lee Lang, Dreamstime.com

Kólígerillinn af stofu, ekki býli

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Matvæli

© Jesse-lee Lang, Dreamstime.com

 

Nú er að koma í ljós að e-kólígerillinn mannskæði kom ekki frá þýska baunaspírubýlinu, áður höfðu gúrkubændur á Spáni legið undir fölskum sakargiftum.

Ástæðan er einföld.  Þessi baktería kemur beint af rannsóknarstofu, en ekki frá landbúnaðarsóðum.  Hún er ónæm fyrir 12 mismunandi bakteríulyfjum úr átta mismunandi sýklalyfjaflokkum, en samt af ætt kólíbaktusa sem venjulega er auðdrepinn með sýklalyfjum.

Til að útbúa afbrigði sem þolir alla þessa flokka sýklalyfja, þá þarf baktus að komast í síendurtekið návígi við sýklalyfin öll, og lifa það af (væg lyfjum), svo hún fari að breytast og mynda ónæmi við lyfjunum.

Hvaðan gæti baktus lært á öll þessi sýklalyf, ef hann kæmi beint frá býli?  Það eru engin sýklalyf notuð við grænmetisræktun.

Nei, þessi baktus kemur frá rannsóknastofunum, annaðhvort frá stórfyrirtækjunum, eða ríkisstjórnum.  Heilsuvörðurinn Mike Adams vill meina að verið sé að fæla fólk frá því að borða lífrænt ræktað grænmeti, hræða það í faðm unninnar matvöru, eitraðrar, geislaðrar, gerilsneyddar og helst gjörsneyddar næringu og vítamínum.  að auki telur hann að Spánn hafi verið nefndur til að hefna fyrir mótstöðu þar í landi við að leyfa erfðabreytt útsæði.

Ef þú ert vantrúarmaður á kenninguna um uppruna af rannsóknarstofu, þá ert þú sjálfkrafa samsæriskenningasmiður um að ofursýklar geti þróast fyrir tilviljun af sjálfu sér úti í náttúrunni, en sú kenning er mun hryllilegri og fráleitari en að veiran sé ættuð af stofu, og hafi viljandi, eða jafnvel óviljandi, ratað út í fæðukeðjuna.

Heilsuvörðurinn reifar problem, reaction, solution ferlið, og segir það hugsanlega vera vakann að þessum sýkingum.  Vandi, viðbrögð, lausn ferlið felst í því að skapa vanda, bíða þess að almenningur krefjist úrbóta og koma þá inn með lausn sem engum heilvita manni hefði dottið í hug að samþykkja fyrr en eftir einhverjar hörmungar.

Vandinn í þessu tilviki er augljóslega kólímengun og dauðsföll, fólkið er bombað með þessum fréttum í öllum fréttatímum og það bíður spennt eftir lausn, en lausnin í þessu tilviki er þá bann við hrávöru, eins og hrárri mjólk, hráum baunaspírum og hráu grænmeti, auk þess auðvitað að láta einhverri stofnun eftir völd til að ákveða í enn meira mæli hvað má og má ekki í matvælaframleiðslu.  Til dæmis gæti slík stofnun talið það of “áhættusamt” að fólk ræktaði sjálft matjurtir.  Enda skapar slíkt lítinn arð í vösum stórfyrirtækjanna.

http://www.naturalnews.com/032622_ecoli_bioengineering.html

Lyklar:

Gullvagninn

Miðaldra fjölskyldumaður sem sinnir jaðarblaðamennsku í frístundum. Hóf ritferilinn á moggablogginu í ágúst 2007, en skipti yfir á Kryppu þegar vefritið var stofað í janúar 2010.

Skrípó