
Vínarver, mynd Wikimedia Commons
Geislun sem er yfir meðallagi en samt í lægri kantinum mælist nú í Tékklandi og annarsstaðar í Evrópu, samkvæmt yfirlýsingu alþjóða kjarnorkustofnunarinnar á föstudag.
Upptök geislunarinnar eru ekki þekkt, en ekki er um geislun frá Fukushima að ræða.
Það er joð 131 ísótópinn sem mælist í litlu magni, en hann er “ferskvara” frá kjarnasundrun, helmingunartíminn er aðeins 8 dagar, sem þýðir að einhversstaðar í kring um Tékkland lekur geislun frá kjarnaofni eða frá annars konar virkri kjarnasundrun (sennilega ekki frá kjarnorkuúrgangi).
Tékkland lítur til kjarnorkuiðnaðarins með aukna orkuframleiðslu í landinu, og stjórnvöld þar vilja tvöfalda þátt kjarnorkuvera í framleiðslunni frá því sem nú er, ólíkt nágrönnum sínum í Þýskalandi, sem eftir kjarnorkuslysið í Fukushima hafa ákveðið að hætta raforkuframleiðslu með kjarnorku upp úr 2022, og Svisslendingum sem fylgdu á eftir Þjóðverjum með svipaða stefnu. Austurríki var samt fyrst og sagði skilið við kjarnorkuiðnaðinn eftir Chernobyl slysið 1986.
http://news.yahoo.com/nuke-agency-reports-unusual-radiation-europe-134506410.html

Comments
Powered by Facebook Comments