
Xenon gas hefur mælst í nægu magni til að álykta að ný keðjuverkun hafi orðið í rústum kjarnorkuversins í Fukushima, segir TEPCO á fréttamannafundi 1. nóvember.
TEPCO telur út frá mælingum á þrýstíngi, hita og fleiri breytum að um minniháttar og / eða tímabundna keðjuverkun hafa verið að ræða í kjarnaofni 2.
Mögulega hefur keðjuverkunin hafist þegar neftrónur rákust á úraníum eða plútóníumleyfar, eða sé sjálfsprottin út frá Curium-244 og 242 ögnum. Talsmaður TEPCO segir líklegt að svipað gerist í kjarnaofnum 1 og 3.
Þessi fréttatilkynning frá TEPCO kemur í kjölfar þess að borgaralegir eftirlitsmenn (ólaunaðir sjálfboðaliðar, efasemdamenn, kryppuliðar sem ekki treysta stjórnvöldum og stórfyrirtækjum) fóru að tala um nýtt gat á byggingu 2. Þar sem áður var tiltölulega heill veggur er nú talsvert gat komið. Það gæti bent til þess að sprenging hafi orðið, en sprengingar við þessar aðstæður þyrla að jafnaði gríðarlegu magni geislavirkra efna út í andrúmsloftið.
Spreningar við þessar aðstæður eru jafnvel verri en kjarnorkusprengjur, sem brenna nánast allt eldsneyti sitt upp í sprengingunni og tiltölulega lítið magn geislavirkra efna dreifist út í umhverfið. Vetnissprengingar, eða litlar kjarnorkusprengingar eins og vísindamenn vilja nú meina að séu líklegar til að gerast í hræjum kjarnokuvera (Chernobyl, Fukushima) eru skítugar með afbrigðum. Þær þeyta geislavirku efni í miklu magni út í umhverfið og mikið af því er svo létt að það getur borist um langan veg og valdið langvarandi mengun í umhverfi, eða sest að í mönnum (lungum eða meltingarvegi) og geislað þá um árabil og á endanum valdið krabbameini.
http://fukushimaupdate.com/latest-news-fission-detected-at-fukushima/
http://fukushimaupdate.com/breaking-new-hole-in-fukushima-reactor-2/

Comments
Powered by Facebook Comments