
Henry Kissinger og Richard Nixon voru menn ársins 1972 hjá Time.
Mynd CC cliff1066
Paul Joseph Watson, Prisonplanet.com, 22. apríl 2011
Þrátt fyrir að Bandaríkin séu flækt í þrjú meiriháttar hernaðarátök og geti varla greitt af gríðarlegum skuldum ríkisins og njóti lækkandi hylli matsfyrirtækja þá sagði fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna og topp baktjaldamaðurinn Henry Kissinger félögum sínum á þremur mismunandi samkomum alþjóðasinna að Bandaríkin þyrftu að hefja landhernað í Líbíu og halda stríðinu í gangi í minnst eitt ár enn.
Það er hinn reyndi Bilderberg blaðamaður, Jim Tucker sem færir okkur þessar fréttir. Heimildamenn hanns hafa hvað eftir annað sannað sig í fréttum Tuckers af brölti Bilderberga og hvernig alþjóðamál þróast “fyrir tilviljun” eins og hópurinn vill að þau þróist. Hann segir Kissinger hafa flutt nánast sömu ræðuna á þremur samkomum á síðustu tveimur vikum. Fyrst var það samkoma hjá Elliot School of International Affairs við George Washington háskólann frá 8-10 apríl, svo hjá Aspen stofnuninni sem hélt þing um “Gildi og milliríkjaháttvísi” í Landsdómkirkjunni og að lokum á sjálfri Bretton Woods II ráðstefnunni í New Hampshire.
“Kissinger var greinilega niðurdreginn þegar hann færði rök fyrir stríði við Líbíu og útskýrði að Þríhliðanefndin (Trilateral Commision) og systursamtök hennar Bilderberg hópurinn, vilji halda stríðinu áfram, samkvæmt heimildum innanbúðarmanns sem hefur reynst áreiðanlegur í gegn um árin. Báðir hóparnir vilja áframhaldandi stríðsrekstur út 2012, til að skapa nægan glundroða í Miðausturlöndum og þrýsting á Bandaríkin til að ráðast á Íran fyrir hönd Ísrael. En það myndi einnig gefa gríðarlegan stríðsgróða af sér,” skrifar Tucker.
Á sama tíma og Óbama virðist ekki óhress með skrið á markmiðum mannúðarverkefnisins í Líbíu (mission creep), því hann sendir dauðaþjarka til starfa í Líbíu til að styðja við loftárásirnar, þá gerði Kissinger fundarmönnum ljóst að lokatakmarkið væri að gera það sem Óbama tók sérstaklega fram að myndi ekki gerast: Landhernaður Bandaríkjanna í Líbíu.
Nú þegar 10. ár hersetunnar í Afganistan er að hefjast og herafli Bandaríkjanna einnig bundinn í Írak, þá hafa Bandarískir skattgreiðendur nú þegar þurft að axla ábyrgð á 608 milljón dollara kostnaði við afskiptin af Líbíu. Ekki sér fyrir endan á þeim útgjöldum, því friðarstjórn Óbama hefur sýnt merki um að auka afskiptin, þó að á sama tíma vari greiningardeild Staðalfátæktar við því að bandarísk stjórnvöld eigi á hættu að skríða niður um flokk vegna getuleysis stjórnvalda við að draga úr fjárlagahallanum.

Mynd CC jimcrotty.com
Krafa Kissingers um landhernað er dæmigerð fyrir það hvernig alþjóðasinnarnir nýta sér bandaríska hernaðarvöðvann til að skáka á alþjóðlega taflborðinu á sama tíma og landið sjálft visnar upp og deyr. Ríkjastjórnir um öll Bandaríkin eru nú að tilkynna að þær geti ekki greitt laun lögreglu og slökkviliðsmanna og hjól nærsamfélagsins eru að stöðvast, svo hvernig í ósköpunum getur ríkisstjórn Óbama réttlætt að eyða upphæð sem á endanum mun verða milljarðar dollara í afskipti af borgarastríði í Norður Afríku?
“Á öllum þremur samkomunum lék Kissinger hina nauðfúsu mey, sem hafði að lokum sannfærst um nauðsyn þess að Bandaríkin yrðu að senda menn til Líbíu – til viðbótar öllum þeim vígvöllum sem Bandaríkin eru þegar sokknir í,” skrifar Tucker.
Kissinger lét óánægju sína í ljós með að fréttir af lykilhlutverki Al-Qaeda hryðjuverkamanna meðal uppreisnarmanna væru fluttar af fréttastofum sem alþjóðasinnar gætu venjulega treyst á að halda slíkum upplýsingum vandlega leyndum. Þessar upplýsingar sem þröngvað er í landsfjölmiðlanna gera það erfiðara að selja innrás í Líbíu, segir Kissinger samkvæmt heimildarmönnum Tuckers.
Endatafl innrásarinnar í Líbíu er að einangra Íran enn frekar og undirbúa árás á landið undir forystu Bandaríkjanna undir því yfirskini að verja Ísrael. Kissinger vélaði af krafti við að tengja Líbíu og Íran í ræðum sínum og staðhæfði að atferli Gaddafis gæti hvatt Írönsk yfirvöld til að flýta þróun kjarnokruvopna. Samkvæmt Kissinger verða Bandaríkin að geta hrætt “vondu” löndin til að halda þeim á mottunni í kjarnorkumálum.
Útvíkkun stríðsins í Líbíu verður vafalaust ofarlega á blaði á fundi Bilderberg hópsins sem verður haldin í Júní í ferðamannabænum St. Moritz í suðausturhluta Sviss, dagana 9-12 júní. Þó ekki sé enn alveg ljóst á hvaða hóteli fundurinn verður haldinn þykir hið íburðarmikla 5 stjörnu Grand Hotel Kempinski líklegt til að hýsa einn allra mikilvægasta Bilderberg fundinn um árabil.
http://www.infowars.com/kissinger-calls-for-us-ground-invasion-of-libya/

Comments
Powered by Facebook Comments