Einn ógeðslegasti og óhollasti skyndibiti sem hægt er að kaupa er KFC eða Kentucky Fried Chicken. Fyrsti skyndibitastaðurinn með þessu sögufræga nafni var opnaður árið 1952 í Salt Lake City í Utah af þeim Harland Sanders og Pete Harman. Þaðan dreifðist ófögnuðurinn út um allan heim og í dag getur þú hvergi farið án þess að sjá einn KFC stað á næsta götuhorni. Yfir 15.000 staðir eru reknir undir merkjum KFC ef eitthvað er að marka upplýsingar sem koma fram á www.kfc.com vefnum en samkvæmt íslensku KFC síðunni er staðan aðeins skárri eða um 10.000 staðir í 76 löndum.
KFC leggur mikið upp úr auglýsingum. Þar eru allir sætir og hlæjandi sem passar ekki við hin venjulega KFC stórnotanda. Sem er a.m.k. 100 kílóum of þungur og búin að reyna sjálfsvíg þrisvar sinnum bara í síðustu viku. Á Íslandi fetar KFC í fótspor barnaperra og níðist m.a. á yngstu iðkendum knattspyrnu með hinu árlega KFC Víkings móti. Þar blakta KFC fánar út um allar trissur og í mótslok troða starfsmenn KFC með góðri hjálp sjálfboðaliða fíneríinu ofan í svanga mallakúta.
“KFC leggur mótinu til verðlaunapening fyrir hvern þátttakanda og kjúklingaveislu í leikslok. Þetta er mikil ,,aksjón“ hjá starfsfólki fyrirtækisins. Á mótinu 2010 störfuðu alls um 20 manns á vegum KFC í Skeifunni, í Víkinni og við akstur milli staða, auk sjálfboðaliða á mótsstað. Kentuckymótin eru afar líflegar og skemmtilegar samkomur, sem KFC er heiður af að hafa átt þátt í að stofna til. Iðkendur eru ánægðir og foreldrarnir ekki síður”
Á öllum KFC stöðunum er boðið upp á kjúklingabita sem gerðir eru eftir upprunalegu uppskrift Sanders ofursta eða svo er sagt. Á Wikipedia er löng lýsing á hversu há-leynileg þessi uppskrift er. Hún samanstendur af 11 jurtum og kryddum sem ræktuð eru á mismunandi stöðum í Bandaríkjunum. Aðeins nokkrir útvaldir þekkja uppskriftina sem er handskrifuð á lítið stílabókarblað með undirskrift ofurstans sjálfs.
Árið 1983 gerði rithöfundurinn William Poundstone tilraun til að komast að leyndarmálum KFC. Hann auglýsti eftir fyrrum starfsmönnum KFC sem vildu kjafta frá. Samkvæmt þeim notar KFC meiri hita og þrýsting við framleiðsluna en margir aðrir kjúklingastaðir. Poundstone lét einnig efnagreina “kryddblönduna” sem inniheldur aðeins MSG, sykur, salt, pipar og hveiti en ekki einhverjar 11 eðal kryddtegundir.
Út frá þessu ályktaði hann að hugsanlega hefði upprunalegu uppskrift Sanders ofursta verið breytt til að spara. En árið 1964 seldi ofurstinn Kentucky Fried Chicken fyrirtæki sitt fyrir 2 milljónir dollara. Í viðtali kvartaði hann undan ýmsum breytingum og sagði:
“Þessir helvítis drullusokkar eru búnir að hórast á öllu sem ég hafði. Ég var með bestu gravy sósuna í öllum heiminum en í dag er þetta bara útvatnað sull og það gerir mig alveg brjálaðan.”
Á Íslandi eru 7 KFC staðir sem er sennilega heimsmet miðað við höfðatölu. En það gerir 1 stað á hverja 45.000 íbúa. Í upprunalandinu er “aðeins” einn staður á hverja 60.000 íbúa og í Bretlandi þurfa 82.000 manns að gera sér hvern stað að góðu. Samkvæmt fréttum Morgunblaðsins ætlar Helgi í Góu að opna 9. staðinn fljótlega en það gerir u.þ.b. tvo staði á hvern Íslending. Sem er örugglega heimsmet.
Verði ykkur að GÓU.

Comments
Powered by Facebook Comments