Kaupið land, gaddavír og byssur

Gull þýtur upp í metverð þegar hræðsla við að batinn hafi verið glópabati vex.  Þekktur fjárfestir ráðleggur fólkið að kaupa land, gaddavír og byssur, því ástandið verður viðbjóðslegt.

Topp fjárfestir varar við því að afleiðingar skuldasöfnunar þjóðríkja kunni að verða svo slæmar á næstu fimm árum, að fólki væri hollara að hætta fjárfestingum á verðbréfamörkuðum og kaupa þess í stað land, gaddavír og byssur.

Gull þaut upp í methæðir í morgun vegna ótta við að efnahagsbatinn sé ekki raunverulegur, og greiningardeildir eru að verða svartari í umsögnum um markaði.  Anthony Fry, aðalritari Evercore Partners sagði í viðtali við CNBC að skuldabréfamarkaðir gætu orðið andstyggilegir á næstu mánuðum og sagði að vandamálin nú, sem væru tilkomin vegna skuldavandræða Evrópulanda, gætu enst í að minnsta kosti fimm ár.

“Skoðið ástandið.  Við höfum Grikkland, nú er það Ungverjaland og risavandamál í kring um Spán og Portúgal,” sagði hann og varaði við “martraðaruppákomum” þar sem verðbólga æðir áfram en verð á eignum fólks lækkar.

“Ég vil ekki hræða neinn, en ég er að íhuga fjárfestingar í gaddavír og byssum, útlitið er ekki gott” og það stefnir ekki í rétta átt, sagði Fry.

Bob Janjuah, sem er einn af þeim sem helst markar stefnu RBS, tekur undir áhyggjur Fry.  Hann spáir því að stjórnvöld muni skuldsetja sig um að minnsta kosti 15 billjónir (amerískar trilljónir) í viðbót sem spýtt er inn í kerfið svo bankamenn geti greitt sjálfum sér góða bónusa og keypt upp ónýtar afleiður í frekari aðgerðapökkum, og hann segir fjárfesta eiga að færa sig yfir í gull til að vinna á móti hjöðnun á verðmæti gjaldmiðla.

http://www.prisonplanet.com/investment-banker-its-going-to-get-nasty-buy-land-barbed-wire-and-guns.html

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments