Justin Bieber vs Kim Jong il
Það rann upp fyrir mér að heimurinn er galinn. Justin Bieber æðið sem tröllríður smástelpum um þessar mundir er náskylt frægðarsól Kim Jong il, leiðtoga
Norður Kóreu. Báðir sækjast þeir í ungar táningsstelpur og eru liðtækir tónlistarmenn. Justin Bieber hefur þó eitt með sér sem Kim hefur ekki. Hann er töluvert yngri og gæti þess vegna átt eftir að verða frægari. Sem ástsæll leiðtogi heillrar sveltandi þjóðar og titlaður höfundur af nánast öllum læsum bókum í Norður Kóreu er eilífð frægð Kims þó alveg örugglega tryggð.
Kim hefur því í dag vinninginn. Hvað varðar hæfileika þá má segja að reynsluleysi herra Bieber hái honum örlítið í þessari samkeppni. Eftir vinsæl Youtube skot þar sem Bieber sönglaði einhverja gamla prumppopp slagara gaf hann út sína fyrstu kvikmynd. Til að spara framleiðslukostnað lék hann sjálfur öll aðalhlutverkin. Myndin gekk vel og sló víst einhver met og var líka í 3D og allt.
Þessu var Kim búinn að svara fyrir nokkrum árum þegar hann rændi frægasta leikstjóra Suður Kóreu. En Suður Kórea er landið við hliðana á Norður Kóreu. Eitthvað svelgdist leikstjóranum á þegar hann vaknaði einn vondan morgundag i bólinu hjá Kim með atvinnutilboð saumað fast á vinstri rasskinnina. Í kjölfarið fylgdu margar vondar áróðursmyndir sem flest fólk hefur aldrei séð.
Hvað varðar stíl og útlit þá hefur Justin Bieber vinninginn. Með sínu barnalega brosi og hárgreiðslu sem allar smástelpur elska samkvæmt Wikipedia. Má segja að Bieber hafi það sem þarf til. Það má samt ekki afskrifa Kim alveg. Líkt og með nýmóðins hárgreiðslu Biebers sem margir strákar skarta og lessusamfélagið hefur fallið fyrir. Þá er hárgreiðsla Kims einnig vinsæl meðal trukkalessa og á vissum svæðum í Norður Dakóta.
Máltækið segir að fötin skapi manninn og ef það er rétt þá hefur Kim vinninginn í þeirri deild. Hans föt eru nefnilega alveg einstök og allir þekkja. Justin Bieber þarf að hafa aðeins meira fyrir hlutunum. Margir aðrir klæða sig svipað eða jafnvel alveg eins og hann. Til að standa út úr hópnum og öðlast heimsfrægð gera fötin lítið fyrir Bieber. Hann gæti þó markaðssett sína eigin fatalínu í fleiri löndum en Kim. Sem er mjög takmarkaður við grímubúninga og Norður Dakóta.
“Það gæti ekki verið betra þegar ég stari í augun þín..”, syngur Bieber meðan brjóstgóðar smástelpur horfa lostafullum augum á litla vininn. Frægustu lög Biebers endurtaka þetta sama þema aftur og aftur. Eitt frægasta lag Kim Jong il sem uppnefnist á íslensku “Ekkert móðurland án þín” og er eftir Kim sjálfan. Toppar sennilega flest sem Bieber hefur látið frá sér fara hingað til.
Ljóðlínur eins og “Landið getur ekki lifað af án þín.” og “Framtíð okkur og von veltur á þér.” eru gott dæmi um snilli Kim Jong il. Meðan Bieber syngur um eina stelpu og hvers vegna hann getur ekki lifað af án hennar semur Kim lög um heila þjóð. Heila þjóð sem ekki getur lifað af án hans. Toppaðu það herra Bieber.
Auðvitað er Bieber bara tíu ára eða eitthvað og þarf að temja sér hógværð eftir því. Það er sennilega fullmikið að semja texta um sjálfan sig og heila þjóð sem getur ekki lifað af án manns, rétt hættur á pela. En hvað um það hér koma tvö gullkorn eftir þessa miklu snillinga í boði Jútúp.
Lyklar:Bieber, Justin, Kim Jong il, Norður Kórea








