Jón Valur Jensson, foli maí mánaðar

Einn duglegasti bloggari landsins og útvarpsstjarna á Útvarpi Sögu fer á kostum í pistli nefndum: Fjöldamorðingi, óvinur Sameinuðu þjóðanna nr. 1, drepinn.  Pistillinn er svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir að þessu sinni.  Litlaus og máttlítill en umræðurnar, sem kallinn virðist nærast á, eru þeim mun skemmtilegri.  Svo skemmtilegar að Kryppan hefur ákveðið að útnefna Jón Val Jensson fola maí mánaðar og heiðra nafn hans með þeim hætti.  Fleiri greinar munu síðan birtast um skrif og skoðanir Jóns á næstu vikum.

Eins og öllum góðum mönnum sæmir þá stillir Jón Valur málinu upp sem baráttu góðs og ills.  Bin Laden er vondi kallinn og Bandaríkin hið góða í sögunni.  En í þessari sögu þá ráðast Bandaríkin á óvopnaðan gamlingja og skjóta hann svo fyrir framan barnunga dóttur sína, ef menn vilja trúa nýjustu sögunni frá Hvíta húsinu.

Um þetta segir Jón: “Að halda því svo fram, að ekki hafi mátt losa heiminn við þennan mann, segir meira um þá, sem þannig rita, heldur en hyldýpi þeirra glæpa sem ósómi þessi hafði á samvizkunni.”

 Í framhaldinu spruttu umræður um hvort það væri í lagi að taka menn af lífi án dóms og laga.  Flestir voru mótfallnir því en Jón Valur var ekki alveg sammála og vildi meina að allt svona tal bæri vott um djúpt og mikið hatur á Bandaríkjamönnum.

Þegar hitna fór í kolunum lét Jón þessi orð hérna falla: “Þið eruð meiri labbakútarnir, vesalings siðlitlu, ef ekki siðblindu vinstri mennirnir sem burðast með sitt Bandaríkjahatur í þungum böggum á sálinni og finna sér það nú til dundurs að verja “rétt” frægasta fjöldamorðingja heims til að “teljast saklaus”.”

En eins og í alvöru Jón Vals færslum tekur hann gagnrýni mjög nærri sér og alveg sérstaklega ef hann er ósammála, sem hann er alltaf.  Margir tóku því þannig t.d. að Jón hefði glaðst yfir morðinu á bin Laden. (Sjá ummæli hér að ofan)   Að færslan og önnur svör hans bæru þann blæ að Jón væri glaður að bin Laden hefði verið drepinn.  Við þetta orð fauk í kallinn og sagði þetta hérna:

“Hvergi er orðið “fagna” notað í máli mínu, það eruð þið, sem gerið það sjálfir, og þú virðist hafa notað Jón Bjarna sem “heimild” um minn málflutning í stað þess að lesa pistil minn vel í gegn, en þar segi ég einmitt: “Engu að síður er illa leikið lík Osama bin-Laden ekkert til að gleðjast yfir. Einnig í honum bjó guðsneistinn og líking við Guð sjálfan ? “

Hérna kristallast alveg klassískt ráð þeirra sem eru duglegir að þræta við gesti og gangandi á hjóli.  Hengja sig á orð en ekki innihald þegar önnur rök duga ekki.  Jón Valur skrifar heilan pistill/svör um hvað hann sé “ánægður” að bin Laden sé allur og hundskammar þá sem vildu ná Osama fyrir dóm.  Gefa honum þannig tækifæri til að hreinsa sig af ásökunum eða vera dæmdan til dauða fyrir t.d. glæpi gegn mannkyni.

En eins og múgurinn þá trúir Jón öllu sem kemur frá spunameisturum Hvíta hússins og því er þessi færsla hans gjörsamlega tilgangslaus.  Bin laden var örugglega ekki drepinn í þessari “vel heppnuðu aðgerð”.  Ég meina það, á hverjum degi breytist sagan og engin óháður aðili fékk að skoða líkið né hafa verið birtir myndir af þessu.  Hvaða snillingi dettur í hug að taka orð ríkisstjórnar Bandaríkjanna trúanleg?

http://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/1164287/#comments

Tengt:

Janúarfolinn

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments