Jón Bjarnason á sterum?

Í dag liggur fyrir bandaríska þinginu frumvarp sem gefur ríkinu alræðisvald yfir allri matvælaframleiðslu í Bandaríkjunum.  Lögin eru samkvæmt talsmönnum sjálfstæðra bænda brot á stjórnarskránni.  Það sé réttur hvers og eins að ráða því hvernig hann ræktar sinn mat og hvað hann ræktar.

Eiturefnafyrirtækið Monsanto og önnur sambærileg risafyrirtæki munu hagnast mest á þessum nýju lögum.  En með þeim verður hægt að skylda bændur til að rækta matvæli sem hafa verið sérstaklega samþykkt.  Bændur í lífræna geiranum gætu þurft að hætta framleiðslu sinni eða verða neyddir til að taka upp óhollari framleiðsluaðferðir og jafnvel kaupa árlega svokölluð Terminatorfræ af Monsanto og álíka fyrirtækjum.

Talandi um Monsanto.  Samkvæmt heimildum Kryppunar býður Micheal Taylor frá Monsanto eftir að gerast yfirmaður nýrrar stofnunnar.  Ef af verður mun Monsanto hafa öll ráð bænda og matvælaframleiðanda í hendi sér.  Ráða hvaða matvæli verða framleidd, hvernig og hverjir mega það.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments