Jóhanna er Gaddafí Íslands

Mynd samsett úr myndum Magnus Fröderberg/norden.org

Sparsamar húsmæður og landsbyggðinn björguðu Icesave atkvæðagreiðslunni úr höndum kerfiskalla og ESB elítunnar.  Sigur skynseminnar  mundi ég segja á kostnað þeirra sem ætlast til að þjóðir heims borgi endalaus bankabailout.

Sú leið sem ríkisstjórnin ætlaði okkur út úr kreppunni verður ekki farin sem betur fer.   En það var leið lántaka og skattahækkana í boði IMF og erlendra bankabófa.     Fyrstu viðbrögð ASÍ, fjármálaráðherra og annarra milljónkalla á mánuði eru bara að fara plan B í staðin fyrir plan IMF.  Spara, sýna ráðdeild og sníða stakk eftir vexti.

Því miður er ekki raunhæft að ráðamenn geri eitthvað af fullu viti.  Né heldur að þeir reyni að fara eftir vilja þjóðarinnar.   Í viðtali við fréttamann eftir þessar kosningar skammaðist Jóhanna yfir atkvæðagreiðslunni.  Málið væri alls ekki fallið til að láta heimskan almenning segja sitt álit.  Það væri sko einsdæmi að láta þjóðir kjósa um svona mál.

Þvílíkur hroki og geðveiki.  Um hvað má þjóðin þá kjósa?  Hundahald og flugvelli sem aldrei á að byggja.  Ætli Jóhanna sé ekki bara Gaddafí Íslands, neitar að fara.

 

 

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments