Feikuðu Bin Laden teip

Tveir fyrrum CIA fulltrúar hafa viðurkennt að hafa feikað myndskeið þar sem fulltrúar úr greiningadeild klæddu sig upp sem Ósama Bin Laden og félaga til þess að ófrægja leiðtogann fyrir íbúum miðausturlanda. 

Þetta er útlistað í grein Washington Post eftir rannsóknarblaðamanninn og fyrrum greiningardeildarfulltrúann Jeff Stein.

Heimilidir Stein herma að í þarfagreiningarfasa innrásarinnar í Írak hafi rekstrardeild njósna í Írak íhugað að framleiða falsað meistarastykki þar sem Saddam Hussein væri sýndur í lostafullum leik með táningsdreng, og dreifa svo afritum af stykkinu af miklum móð innan Íraks.

Sú hugmynd, ásamt feikuðum fréttatilkynningum frá Íröskum stjórnvöldum, var aldrei framkvæmd, vegna listrænnar deilu milli njósnastofu og tæknideildar CIA.

Þrátt fyrir það, þá segja heimildarmennirnir að þjónustan hafi áður soðið saman að minnsta kosti eitt feikað Bin Laden vídeo:

Leyniþjónustan gerði raunar myndband og setti á svið atriði þar sem Bin Lden og nótar sátu við varðeld, slurkuðu úr brennivínsflöskum og rifjuðu upp hertökur sínar á drengjaholdi, sagði einn af fyrrum CIA fulltrúunum, og hlakkaði í honum við minninguna.  Leikarar voru valdir úr hópi okkar hörundsdekkri launþeganna.

Fulltrúarnir fyrrverandi sögðu Stein að verkefnið hefði verið tekið yfir af hernum, eftir að það fjaraði út hjá þjónustunni:

Það var bara svo að leyniþjónustan hafði ekki nægt fé og þekkingu til að halda þessum leiksýningum úti.  Herinn tók við verkefnunum.  Þeir áttu hæfileikafólk, niður í Bragg-virki, í miðstöð sérhernaðar.

Þessi síðasta uppljóstrun styður við gögn sem benda til þess að leyniþjónustan, og kannski herinn í meira mæli, hafi stundað framleiðslu á feikuðu Bin Laden teipum.

Eins og vefsíðan Infowars.com hefur tekið saman í þaula, þá er Intelcenter, bandaríska eftirlitsstofnunin sem hefur gefið út flest Bin Laden teipin og myndböndin, sem flest hafa reynst endurmixuð gömul teip, eða hrein sviðsetning, Intelcenter er sem sé útibú frá INDEFENSE (ekki því íslenska), en starfsmenn þess eru mikið til fyrrum fulltrúar greiningardeilda hersins, svo sem Jim Melnick, sem var 16 ár í bandaríska hernum og Varnargreiningardeildinni þar sem hann starfaði við sálfræðilegar aðgerðir.  Melnick hefur einnig unnið beint fyrir fyrrum varnarmálaráðherrann Donald Rumsfeld.

Intelcenter gaf út hið alræmda teip sem nefnt er “flugræningjarnir hláturmildu” og hélt því fram að þar væri um Al-Qaeda myndband að ræða, þrátt fyrir að myndefnið væri tekið upp af “öryggisfyrirtæki” við ræðuhöld Bin Laden árið 2000.

IntelCenter var einnig gripið glóðvolgt við að bæta inn merki sínu inn á teip (líkt og Stöð 2 eða RÚV merki), en um leið var bætt við merki As-Sahab, hinni svokölluðu almannatengsladeild Al-Qaeda.  Þetta sást með því að greina myndbandið, bæði merkin voru í sama lagi í teipinu, sem sýnir að þessar tvær stofnanir eru ein og hin sama.

Gæti áhugaleikhús CIA sem samanstóð af “hörundsdökkum launþegum” leyniþjónustunnar hafa staðið að hinni hryllilega illa fölsuðu uppfærslu frá 2001 sem nefnd er “feitnefja” Bin-Laden teipið, sem fannst fyrir ótrúlega tilviljun í húsi í Jalalabad eftir að andstæðingar Talibana náðu því á vald sitt?

Það myndband sýndi feitann Osama Bin Laden hlæjandi og grínandi um það hvernig hann hafi staðið að atburðunum 11. september 2001.  Handritagerð var ekki upp á marga fiska og var bætt úr því eftirá með því að þýða og texta teipið með betri línum (ekki því sama og leikarinn var að segja).  Ekki tókst betur til en svo að “Bin Laden” lofsöng tvo af flugræningjunum, en fór rangt með nöfnin þeirra.  Þessi Ósama skrifaði einnig með annarri hendi en upprunalegi Ósaminn og skartaði gullhringjum, sem er algerlega andsnúið múslimskum sið.

Þrátt fyrir þessa hrottalega slæmu uppsetningu á verkinu, þá stóð CIA þétt við bakið á teipinu og lýsti það hið opinbera “játningamyndband vegna atburðanna 11. september.”

Þessar uppljóstranir varpa einnig ljósi á annað teip frá Bin Laden útgáfunni, en í því teipi var “Bin Laden” látinn halda því hlægilega bulli fram að hann væri í liði með Saddam Hussein, en teipið var gefið út í aðdraganad innrásarinnar í Írak.

Sú hugmynd að verkefnið hafi verið tekið yfir af Pentagon og gæðastaðallinn hækkaður á róttækan hátt, einhverntíma eftir árið 2003 rímar við þá staðreynd að síðari tíma teip hafa verið betur unnin.  Helst ber að nefna teipið sem var gefið út rétt fyrir kosningarnar 2004 og stafræn endurútgáfa [með THX hljóðrás] frá 2007 þar sem Bin Laden skartaði lituðu skeggi.

Ef þú hefur gaman af sögu Bin Laden útgáfunnar, þá er listi yfir þau helstu í eftirfarandi grein: New Bin Laden “Confession” Tape: Fake Like The Rest?

Þetta er frjálslega þýtt úr grein Steve Watson frá Prisonplanet.com Former CIA Officials Admit To Faking Bin Laden Video .  Þar eru margir tenglar í bakgrunnsefni og útgefin feik-teip.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: