Já fólkið eru örvitar og fífl

Holdgerfingur Já fólksins sem vill borga og ábyrgjast skuldir íslenskra glæpabanka kallar sig Örvitann.  Rök hans eru eftirfarandi með leyfi forseta:

“Þessi samningur er rosalega góður og miklu betri en sá síðasti.”, “Ég tel einfaldlega rétt og skynsamlegt að segja já. Sumir telja ekki rétt að segja já en að það sé skynsamlegt. Spurningin er hversu skynsamlegt það er að standa á rétti sínum þegar afleiðingarnar geta verið mjög slæmar.”

Það kemur kannski ekkert svakalega á óvart að maður sem trúir í blindni á refsivönd ríkisins telji bara best að borga.  Ekki vegna þess að það sé rétt heldur vegna þess að ríkið segir að það sé rétt.  Ríkið ræður.

Annar hættulegur öfgamaður með geðveilu á háu stigi sagði í nýlegri færslu að íslenskur almenningur ætti að borga brúsann en ekki þrotabú Icesave vegna þess að:  “Allir verða að sætta sig við og samþykkja með einu eða öðru móti aðgerðir stjórnvalda.”

Þetta er sama geðveiki og réð för fyrir bankahrunið.  Allir eiga að vera með og engin á móti.  Skiptir ekki máli hvort það er verið að gera rétt eða rangt.  Ríkið var jú fylgjandi bankaráni Björgólfs og Icesave.  Nú vill ríkið að almenningur borgi stríðsgóssið og þess vegna er rétt að borga.

Svona rök réttlæta fjöldamorð og stríð milli þjóða.  Svona rök notar geðveikt fólk sem ætti í fullri alvöru að loka inni um aldur og ævi.  Svona rök nota fasistar sem borða mannvonsku í morgunmat og drekka barnablóð í eftirmiðdagskaffi.  Svona rök notar öfgatrúfólk.

 

 

 

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments