Einn af hverjum fimm starfsmönnum í Róm hefur sótt um leyfi frá störfum, börn skrópa í skólum og fólkið fer á ströndina eða dagsferð í burtu vegna spádóms frá 1915 um ‘stóra skjálftann’ sem á að verða í dag, 11. maí 2011.
Staðarblöðin taka þátt í fjörinu og hafa birt ‘afkomupésa’ í blöðum sínum, hvernig á að haga sér í jarðskjálftum (dyrastafir, undir borð, koma sér út ef hægt er) og væntanlega eru þeir allra flottustu með blöðung um það hvernig á að komast af þegar klósettpappírinn klárast í Bónus.
Það eru spár jarðskálftasnillingsins Raffaele Bendani sem eru rótin að þessu fári, en hann var talinn spáglöggur af löndum sínum og spáði þessum stóra árið 1915, en hann lést árið 1979.

Comments
Powered by Facebook Comments