Íslenskir sauðaþjófar

Á öldum áður var talað um sauðaþjófa og þóttu þeir ekki beint fínn pappír eða kálfaskinn.  Með breyttum tímum og þjóðfélagi hafa sauðaþjófarnir gufað upp en í staðin komið stétt þjófa sem stelur af sauðum.  Þessi stétt kallast einu nafni kaupmenn og stærsti kaupmaðurinn heitir Jón Ásgeir, auðvitað.  En Jón er ekki sá eini heldur eru kaupmennirnir fjölmenn stétt sem eru í öllu frá barnableyjum upp í risa vörubíla.  Sem betur fer ríkir frjáls samkeppni á Íslandi eða svo er sagt.  Þannig að allt tal um þjófa hjá mér eru smá ýkjur.  Það neyðir mig engin að kaupa brauð og kaffi eða endurnýja tölvuskrattann.  En þegar ég geri það þá lendi ég í klóm manna sem telja það eðlilegt að hafa mun hærri álagningu en gerist og gengur erlendis.

Þreyttur á okri og álagningu pantaði ég mér nokkrar tölvuvörur í gegnum netið frá B&H raftækjabúllunni í New York.  Fyrst skal nefna Transcend 500gb ferðaflakkara á krónur 15.970 með flutningskostnaði  og vsk.  Hér heima kostar 500gb ferðflakkari í tölvulistanum 24.900 krónur.  Munur upp á 55% staðreynd og þykir sjálfsagt ekki mikið meðal íslenskra sauða og þjófa.  Annað dæmi er MSI GX640 fartölvu sem Tölvulistinn selur á aðeins krónur 269.900 hjá B&H búllunni kostar sami gripur kominn hingað heim með öllum gjöldum 197.000 krónur.  Þessi munur er svo lítill eða 37% að það tekur því varla að tala um hann.

Annað dæmi er 16gb Sandisk CF minniskort sem  kostar 34.900 krónur hjá Heimilstækjum en 22.880 krónur ef þú pantar af netinu.  Það gerir mun upp á lítil 55% og er vel sloppið því fyrir nokkrum mánuðum var munurinn yfir 100% á sama hlut.  Í heildina virðist því Íslandsgjaldið svokallaða vera 30-60% á vörum sem auðvelt er að panta sjálfur í gegnum netið.  Hvernig einhverjum dettur hreinlega í hug að kaupa svona vörur út í næstu búð er ofar mínum mannlega skilningi.  Að versla á netinu er bæði þægilegt og miklu ódýrara en að keyra út í næstu okurbúllu.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments