Íslenska vatnið eða bóluefni.
Sóttvarnarlæknir skrifar svargrein í Fréttablaðið og fullyrðir að öll bóluefni á Íslandi séu örugg. Svo örugg að nákvæmlega sömu bóluefni í Svíþjóð og Finnlandi geta valdið drómasýki. “Það hefur enginn reynt að breiða yfir það, að í Finnlandi og Svíþjóð tengdist bólusetning með Pandemrix drómasýki hjá ungu fólki. Þessi tengsl hafa hins vegar ekki sést í öðrum löndum þrátt fyrir milljónir bólusetninga og hafa heldur ekki sést á Íslandi.” Segir sóttvarnarlæknirinn en gleymir að bæta við að evrópska lyfjastofnuninn varaði við bólusetningum ungmenna með þessu nákvæmlega sama bóluefni.
Það er því spurning hvort íslenska vatnið sé áhrifavaldur.
Lyklar:Bóluefni, bólusetningar








