Íslenska klósettskálin

Það er verið að sturta þjóðinni niður og engin nennir að hreyfa sig. Íslendingum virðist beinlínis hlakka til að éta skítinn á botni klósettskálarinnar.  Sömu skálina og Davíð Oddsson, Björgólfur Thor og Bónusgrísinn hafa drullað í undanfarin nokkur ár.  Hvað er að fólki sem nennir ekki að nota hanska eða klósettbursta heldur ætlar að éta skítinn með bestu lyst.  Mér verður óglatt við tilhugsunina en er sem betur fer ennþá aðeins frá brúninni.

Kannski er þetta ekkert nýtt en mér blöskraði að heyra í morgunsárið ráðherra Samfylkingarinnar tala vinalega um Hollenska stríðshrotta með þotur.  Þessi hollenski hulduher vill víst nýta sér íslenskar rollur í skotmörk fyrir erlenda friðardúfuhermenn eða hvern þann sem getur borgað uppsett verð.  En er ekki hægt að finna önnur not fyrir fólkið í Keflavík en sem lifandi skotmörk fyrir erlendan árásarher?

Ekki er nú hugmyndin mikið skárri að gera íslenska mold að urðunarstað fyrir pólskar sígarettur.  Rolf Johanesn ehf. flutti inn tugi  gáma af gölluðum sígarettum í þeim eina tilgangi að urða innihaldið.  Það er víst ódýrast að moka hvaða ógeði sem er frá Evrópu ofan í íslenska mold.  Alls konar reglur og vesen í Póllandi sem flækjast fyrir svo það marg borgar sig að flytja heilt gámaskip af úrgangi til að urða á Íslandi.  Hversu sjúkt er ástandið hérna ef þetta er í lagi og borgar sig!  Að vísu var þetta stoppað af  rétt áður en innihald síðasta gámsins fór ofan í jörðina.  En ekki vegna þess að yfirvöld séu á móti pólskum eðalsígarettum, nei, málið fór bara ekki rétta leið í gegnum kerfið.

Má ég nú frekar biðja um vændishús að hollenskri fyrirmynd og framleiðslu dýrakláms ef Samfylkingin og Vinstri grænir vilja endilaga reyna að borga skuldir ræningja.   Öll aðstaða er fyrir hendi í Alþingishúsinu og góð staðsetning skemmir ekki fyrir.  Það þarf ekki einu sinni að flytja inn hórur heldur dugar að sáldra smá glimmeri yfir alþingismennina sem bíða nú þegar með beran bossann út í loftið eftir útlenskum köllum með peninga.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments