Ísland, músin sem orgaði

Szandor Blestman skrifar:

Mér fannst ég heyra eitthvað þarna um kvöldið.  Það var hljóð úr fjarska, lágur gnýr, öskur í einhverri skepnu í fjarska sem hafði loksins ákveðið að gera vart um sig.  Það vakti mig um stund, en það var svo fjarri að ég fann ekki fyrir ótta og snéri mér einfaldlega á hina hliðina og fór aftur að sofa.

Næsta morgun heyrði ég að Íslendingar væru að draga línuna.  Að þeir væru að hafna kröfum Breta og Hollendinga, að skuldirnar væru afleiðing af blekkingaleik, og það er rétt.

Íslendingum hefur vaxið grön.  Þeir eru að gera það sem ég vildi að Bandaríkjamenn hefðu gert eða muni gera í framtíðinni.  Þeir snúast gegn einkabönkunum sem virðast halda að þeir séu ofar lögum, að þeir geti breytt reglum að vild og að þeir einir viti hvað sé best fyrir heiminn, sem að sjálfsögðu gefur þeim meiri hagnað og völd, fyrir tilviljun.

Ég er kannski ekki sammála allri pólitík á Íslandi, landið er kannski ekki sú skjaldborg um frelsi sem fólk á flótta frá ágengum stjórnvöldum leitar að, en ég dáist að þeim fyrir að standa í lappirnar gegn banksterunum.

Þetta er upphaf langrar og góðrar greinar Szandor Blestman Iceland, the Mouse that Roared

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: