Isis í konunglega brúðkaupinu

- Þessi var líka með hatt, mynd CC aurélien
Mér brá þar sem ég fylgdist með konunglega brúðkaupinu í andaktugri hrifningarsælu (RÚV) þegar djöfulleg ásjóna rann yfir skjáinn þegar sýndar voru myndir af kirkjugestum að syngja sálmana sína.
Við nánari athugun reyndist það bara vera ömmubarn drottningarinnar og systkinabarn Vilhjálms,, Bítrís prinsessa, með höfuðdjásn gyðjunnar Isis og viðeigandi svert goth-augu, enda við hæfi að ef þú ætlar að mæta óguðlega klædd í kirkju, að draga ekkert úr áhrifunum.
Ísis er egypsk gyðja, hluti af egypsku trúarbrögðunum sem eru væntanlega hin raunverulegu trúarbrögð kóngafjölskyldunnar. Hún er móðir Hórusar, en Hórus er nokkurs konar Jesú í þeim heimi, stórt númer, oft táknaður með Fálka en “auga Hórusar” er líka áberandi tákn í heimi nútíma viðskipta og lista (eitt auga, augað eina, alsjáandi augað).
Ísis er oft sýnd með höfuðskraut útbúið úr kýrhornum með sólkringlu á milli. Hún er fyrirmynd frelsisstyttunnar, sem einnig er merki Columbíu kvikmyndaversins, þar heldur hún kyndli Lúsifers hátt á lofti.
Hér er svo mynd af prinsessunni þar sem hún mætir í brúðkaupið með sérsmíðaðann hatt sem skartar sólarkringlu og kýrhornum sitthvoru megin.









