Írar henda eggjum í Blair

Írskir mótmælendur þeyta flöskum, eggjum og skóm að Tony Blair þar sem hann kom til að árita nýa bók sína, “Förina”.

Meira en 200 háværir mótmælendur, margir sönglandi slagorð gegn Blair vegna Íraksstríðsins, höfðu safnast saman vegna áritunarinnar og þeyttu allskyns hlutum að Tona þegar bílalest hans kom á staðinn og hann steig út.

Ekkert skeytanna rataði nálægt mikilmenninu en þétt viðvera írsku lögreglunnar GARDA verndaði herran.

Kona ein reyndi borgaralega handtöku inni í bókabúðinni.

“Eftir að ég fór í gegn um öryggisleit sem jafnast á við flugvallaöryggi til að komast í návígi við Blair, þá tilkynnti ég honum að ég væri komin til að framkvæma borgaralega handtöku á honum vegna stríðsglæpa sem framdir voru í Írak,” sagði Kata O’Sullivan, aðgerðasinni frá Írlandi Palistínu.

“Herra Blair varð niðurlútur og ég var tafarlaust gripin af fimm öryggisfulltrúum og dregin á brott.”

Toni hefur fengið 4,5 milljónir punda fyrirfram fyrir ævisögu sína, en það dugar skammt, því hann hefur sagt vinahópnum að hann þurfi 5 milljónir punda á ári til að viðhalda þeim lifistaðli sem hann á að venjast.

Í fyrstu beinu útsendingunni sem hann birtist í til að manga bókinni að fólki kom í ljós að hann hugsar ekki ósvipað Ingibjörgu Sólrúnu þegar kemur að lýðræði og grasrótinni.

Hann vísaði því á bug að hann væri óvinsæll vegna ódæða í Írak.

“Eitt það fyrsta sem maður lærir í stjórnmálum er að þeir sem hrópa hæst eiga ekki endilega skilið að mest sé hlustað á þá,” sagði hann við ríkissjónvarpið RTE.  Með öðrum orðum, þið sem hendið skóm og hrópið á mig fyrir stríðsglæpi og blóðslóð, þið eruð ekki þjóðin!

http://www.rawstory.com/rs/2010/09/bottles-eggs-shoes-hurled-tony-blair-ireland-appearance/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments