Internet 2 er tollahlið helvítis

Almenningur elskar internetið og er neikvætt fyrir þeim hugmyndum að slá það af.  Því mun netið umbreytast í hænuskrefum þar til frelsið er horfið og internet 2 er skyndilega orðið að veruleika.

Það er stutt síðan kryppa.com greindi frá baktjaldamakki Google og Verizon um að forgangsraða pökkum á stóru flutningsleiðum internetsins, þannig að þeir sem greiða sérstaklega fyrir það (ríkið, áróðursstofnanir, geldir stórstraumsfjölmiðlar, auðhringir) fái forgang, meðan jaðarsíður og sprotahugmyndir, sem ekki hafa efni á slíku (eða hönd í vasa skattgreiðenda), verða smám saman óaðgengilegri og erfiðari að finna.  Það er ekkert annað en upprunaleg internet 2 hugmynd, sem aðlöguð er vegna áhugaleysi almennings og notuð til að skemma internetið eins og við þekkjum það.

En fleira bullar í seiðpottum þessara púka sem vilja skorða upplýsingaflæði og spyrna við niðurrifsöflum eins og Kryppu, sem hafa verið dugleg að rífa niður vel undirbúnar áróðursherferðir stjórnvalda og auðhringja.

Þessi öfl hafa náð ágætum árangri með misnotkun höfundarréttarlaga.  Til dæmis hefur þeim tekist ítrekað að breyta lögum í Bandaríkjunum í hvert sinn sem Mikki mús er á leiðinni í almannaeign (public domain), þá verpir þingið út fúleggi, sem framlengir höfundarréttinn.  Þeim hefur einnig tekist vel að skelfa fólk með hryðjuverkum gegn viðskiptavinum sínum, lögsóknum á þá sem kaupa og afrita tónlist og myndefni.  Ágætis rök um að afritun sé orðin leyfileg í krafti hefðarinnar eru hunsuð.  Við höfum jú tekið upp efni úr sjónvarpinu frá því á níunda áratugnum, þegar vídeotækin komu fyrst á markað, og tónlist hefur verið tekin upp á kasettur og fleira mun lengur en myndefnið.

Þar ætla þeir að ganga á lagið.  Við sáum hlægilegar tilraunir mbl.is í þessa átt, þar sem þeir settu upp notkunarskilmála og höfundarrétt og hindruðu fólk í að velja texta af síðum þeirra nema að samþykkja einhverja hallæris skilmála.  Kryppan skrifaði um málið og einnig var hlegið að mbl á víðlesinni netsíðu Boingboing, sem fjallar talsvert um leyfismál og höfundarrétt út frá sjónarhóli neytenda og listamanna.

Nú má vera ljóst að mbl menn voru ekki með tilraunir út í loftið, heldur eru með í þessari þróun og bíða betri tíðar með minni samkeppni.  Í júní greinir Boingboing frá því að AP steypan vilji fara að rukka menn fyrir tilvitnanir í fréttir sínar.  Þeir eru meira að segja komnir með gjaldskrá, tilvitnanir sem innihalda 5-25 orð kosta $12.50, og svo stighækkandi upp í $100 fyrir að endurbirta alla greinina.  Þessa gjaldskrá vilja þeir setja á þá sem blogga og vitna í fréttir, eða aðrar fréttastofur sem vitna í fréttir steypunnar.  Þess má geta að fréttir hafa aldrei verið taldar höfundarréttarvarðar, og hver sem er getur undir “fair use” löggjöf í Bandaríkjunum vitnað í ritað mál og jafnvel notað klippur úr kvikmyndum til að skýra það sem fjallað er um í nýju verki.

En það allra brjálaðasta sem ég hef heyrt er að auðhringirnir vilji fara að rukka fyrir notkun á höfundarvörðum vörumerkjum, svo sem Microsoft, Apple, Starbucks, Sky og svo framvegis.  Ekki nóg með það, heldur vilja þeir eiga öll orð sem innihalda sömu stafi, samanber lögsókn Sky gegn Skype fyrir að “stela” Sky-inu!

Nú þegar er fylgst með allri umferð á internetinu af auðhringjum og stjórnvöldum.  Facebook var fjármögnuð af njósnastofnunum, einnig Google.  Þegar þú í framtíðinni skrifar póst með gmail, yahoo, facebook, eða notar skrifstofubúnað google á netinu, þá verður sjálfkrafa gjaldfært fyrir hvert skrásett vörumerki sem þú notar, nú eða frasa, 5 orð eða meira, sem hafa birst á einhverri fréttasíðu á einhverjum tíma.

Með fleiri Internet 2 “tækninýjungum”, svo sem að allir séu auðkenndir inn á netið (“ökuskírteini” á netið), og þurfi að sækja um útsendingarleyfi fyrir bloggíðum, þá verður lífið á framtíðarnetinu, sem kannski mun heita internet 2, eða bara gamla góða internetið, sem þróaðist burt frá upphafinu, eitt alsherjar tollahlið helvítis.

Mynd CC antwerpenR
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments