Fyrir utan augljósar lygar og bullfréttir hjá fréttastofu RÚV og BBC þá má kannski skrifa eitt og eitt “klúður” á tæknileg mistök. Hérna er gott dæmi um “tæknileg” mistök í hita leiksins hjá BBC. En mogunverðarfólkið þeirra virðist ekki þekkja muninn á indverska fánanum og þeim líbíska. Eða er sjónvarpsfólkið svo meðvitað um áróðurshlutverk BBC að það lætur þetta augljósa bull fljóta út á öldur ljósvakans án þess að leiðrétta það. Það þarf engin að segja mér það að vel menntað sjónvarpsfólk hjá BBC þekki ekki muninn á Indlandi og Libíu.
Indland eða Líbía, ekki viss!!
– 28/08/2011Posted in: Fjölmiðlar, Með forsíðumynd, Stríð

Þeim gengur greinilega ekki vel að finna hóp af fólki að fagna uppreisnarmönnum. Þá er bara það næst besta gert, að búa það til. Annars eru þessir sjónvarpspresenterar þarna ansi lofthausaleg að sjá, sem er allt í lagi ef fjalla á um eitthvað léttmeti að morgni, en svona hænuhausar ættu að láta alvarlegu fréttirnar alveg í friði. En það er kannski meiningin hjá stjórnendum stöðvarinnar, hafa bara gagnrýnislausar froðudúkkur sem auðvelt er að stjórna.
Svá góðr
2