IMF vill einn gjaldmiðil handa öllum.


Íslensk kjánaprik sem halda að evran sé komin til að vera mega hætta að lesa.  Því samkvæmt nýlegu IMF skjali er kallað eftir einni heimsmynt sem gæti heitið Bancor til heiðurs John Maynard Keynes.  Myntin á að leysa af hólmi alla aðra gjaldmiðla sem notaðir eru í viðskiptum milla landa í dag.

Höfundur skjalsins, Reza Moghadam, kemst að þeirri niðurstöðu að besta leiðin til að tryggja fjármálastöðugleika í heiminum sé að hafa einn gjaldmiðil. Sjálfstæðum ríkjum sé ekki treystandi til að stýra flæði peninga  um hagkerfi heimsins.

Að vísu viðurkennir höfundur að eitthvað mikið þurfi að gerast til að þjóðir heimsins afsali sér slíkum völdum.  En með tíð og tíma sé allt hægt.  Best sé að byrja smátt t.d. með frjálsu samráði.  Síðan sé hægt að færa sig upp á skaftið og setja bindandi reglur um gjaldeyrisforða með viðurlögum.

Lokaskrefið verður síðan ein alþjóðleg mynt sem lokaður hópur bankamanna stjórnar.  Engar ríkisstjórnir að flækjast fyrir eða kosnir fulltrúar almennings.

http://www.infowars.com/new-imf-strategy-document-charts-launch-of-bancor-global-currency/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: