
Strauss-Kahn segir félögunum sögur
Dominique Strauss-Kahn lénsherra frá IMF var nappaður á Kennedy flugvelli, þar sem hann hafði stokkið um borð í sæti á fyrsta farrými í tilraun til að hlaupast á brott frá kvörtunum hótelþernu á lúxushóteli í New York.
Vandræðagangurinn hófst um hádegi í gær, þegar 32 ára gömul hótelþerna gekk inn í hótelsvítu foringjans, en hann var þá einmitt að koma ferskur úr sturtu.
Sennilega hefur hann vaknað í sjöunda himni yfir vaxandi mikilvægi IMF í molnandi efnahagskerfi heimsins, fundist eins og hann væri einn af gömlu lénsherrunum, langt yfir aðra hafinn. Í stutunni kann hann að hafa rifjað upp “Primae Noctis” ákvæðin, þar sem lénsherran átti kost á að sænga fyrstu nóttina hjá nýgiftum konum (og körlum?) í skírinu. Þegar svo hann er rakur að þurrka sér eftir blauta drauma, dettur þá ekki bóndarós inn í vistarverur hans, og stemmningin grípur lénsherran.
Hann gerrir eldsnöggt áhlaup á konuna, sem þrátt fyrir að vera helmingi yngri en IMF folinn nær ekki að komast undan. Hann sódómerar konuna dálitla stund, en svo tekst henni að rífa sig lausa og hlaupast á brott, enda “Primae Noctis” löngu liðin.
Draumurinn hrynur hjá Strauss-Kahn, hann klæðir sig með hraði í einkennisbúning nýnazistanna (jakkafötin), skilur farsímann sinn “óvart” eftir á hótelinu (veit hann hversu auðvelt er að finna staðsetningu farsíma?) og þeytist út á flugvöll, á meðan þernan og félagar hennar úr lágstéttinni hringja í neyðarlínuna.
Á flugvellinum tekur fagnandi faðmur Air France við kappanum, hann er með opinn samning við félagið um að hann geti hoppað í hvaða flug sem er á fyrsta farrými án nokkurs fyrirvara.
En Hollywood hetjurnar úr “Special Victims Unit” létu ekki vel að stjórn og náðu að sækja herrann á fyrsta farrými áður en hægt var að losa ranann frá fuglinum og fljúga í frelsið. Þeir fá örugglega memo í framhaldinu um að leita ekki með svona áleitnum hætti næst þegar lénsherra hrasar í heitapottinum fyrir slysni.
Strauss-Kahn var leiddur úr flugvélinni, en þeir hvorki teisuðu né handjárnuðu hann þó nægt tilefni hefði verið til þess, enda þarf ekki mikið tilefni í lögregluríkjum Bandamanna um þessar mundir.
Fórnarlamb Strauss-Kahn fór á Roosevelt spítalan til aðhlynningar og sálfræðimeðferðar.
Hér eru helstu afrek Strauss-Kahn til þessa:
- 1949 Fæddist í Neuilly fyrir vestan Paris þann 25 april
- 1973 Fellur í ENA, stjórnkerfisskóla fyrir elítuna, færir sig yfir á efnahagssvindlbraut í CNRS
- 1999 Segir af sér sem fjármálaráðherra í skugga grunsemda um fjármálamisferli með MNEF, það var síðar hvítþvottað
- 2007 Fær lénsherrastöðu við IMF til fimm ára með 48 og hálfa milljón í árstekjur (væntanlega skattfrjálst), auk 8 og hálfrar milljóna króna vasapeninga á ári (til að greiða hótelþernum þjórfé, og standa straum af öðrum álíka kostnaði)
- 2008 Baðst afsökunar á framhjáhaldi með samstarfsmanni
- 2011 Sódóma NY
Strauss-Kahn gæti hugsanlega sloppið við leiðinleg réttarhöld og enn leiðinlegri dóm sem kynferðisafbrotamaður með því að spila út diplómatískri friðhelgi stórlénsherra IMF, en starfsmenn sjóðsins eru alþjóðlega friðhelgir þegar þeir framfylgja heilagri starfsemi sjóðsins á heimsvísu. Þannig geta bændalýður og leiguliðar ekkert gert (lagalega) þó þeir missi eigur sínar, heilsu og lífsafkomu vegna þvingunaraðgerða sjóðsins í gegn um starfsmenn sína. Hvort þessi diplómatíska friðhelgi nái til þess þegar starfsmenn hrasa á siðferðissvellinu á hótelherbergjum sínum, það er matsatriði, en þegar kemur að mati á mektarmönnum, þá vill það oft leggjast með þeim, þannig að því fer fjarri að álíta að friðhelgisspilið sé ógilt í þessu tilfelli.
Hann gæti líka tekið Pólanski trixið á málið, fengið lausn gegn tryggingu og hlaupið aftur í faðm Air France undir því yfirskini að hann verði að drífa sig á mikilvægan fund í öðrum löndum. Sest svo að í Frakklandi eða annarstaðar þar sem hann er öruggur frá framsalskröfum Bandaríkjamanna.
Tengt:
http://www.lexpress.fr/actualite/politique/agression-sexuelle-que-risque-dsk_992900.html
http://www.reuters.com/article/2011/05/15/us-strausskahn-arrest-timeline-idUSTRE74E08720110515
http://www.nypost.com/p/news/local/imf_boss_strauss_kahn_arrested_in_Kbd7uAi594vbej3oORXfcJ


Ætli hann verði vistaður í Guantanamo eins og aðrir hryðjuverkamenn?
Svá góðr
1
Við Jónas Kristjánsson virðumst sjá Kahn málið svipuðum augum
http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=15460
“Dominique Strauss-Kahn heldur sig mega gera það við fátækar konur, sem hann má gera við fátæk ríki. “