
Það virðist ’tilviljun’, eða ‘skrítið’, en nú er sæði til tæknifrjóvgana íslenskra skattgripa flokkað sem landbúnaðarafurð.
Vísir greinir frá þessu í dag í hlutlausri frétt um ruglingslegar aðgerðir tollstjóraembættis og kvensjúkdóma og fæðingalækni sem hefur áhyggjur af auknum kostnaði fólks sem þarf á gjafasæði að halda til tæknifrjóvgunar.
En þetta er ekki hlutlaus frétt, ekki ‘ruglingur’, eða ’tilviljun’. Það er búið að spenna okkur fyrir gríðarmikinn Iceslave og óráðssíuvagn og nú hvín í svipunni. Íslendingar eru gripir í skattafjósi IMF og ef við ætlum að halda áfram að skrifa ‘hlutlausar’ fréttir, þá verða þær margar um skrítnar tilviljanir á næstunni.
Þetta er alger móðgun við okkur öll, að flokka okkur sem ‘landbúnaðargripi’, kerlingarnar eru beljur sem spúa út nýjum kálfum fyrir þetta fjós og karlarnir eru ófrjó geldneyti, sem draga fisk úr sjó eða vinna hjá erlendum auðhringjum í álverum, meðan IMF póstar myndum af dætrunum á e-Bay til að selja hæstbjóðendum.
Íslenska ríkið skattleggur mannssæði
Mynd CC law_keven
Comments
Powered by Facebook Comments