IMF hefur engan trúverðugleika

Frá mótmælum gegn IMF á Íslandi

Tyler Durden, Zero Hedge, 21.6.2011

Þó sumum hafi komið það á óvart að fyrrum foringi IMF sé sagður nauðgari þá hafa allir markaðslegir efasemdamenn vitað um langa hríð að sjóðurinn hefur alls engan trúverðugleika.

Það er því ánægjulegt að sjá í skýrslu innra eftirlits sjóðsins sjálfs að “stefnumörkun frá greiningu Alþjóðlega gjaldeyrissjóðsins (IMF) haldist ekki alltaf í hendur við niðurstöður greininga, og geti þar með dregið úr orðspori sjóðsins.”

“Margir starfsmenn sögðust finna fyrir þrýstingi um að laga niðurstöður sínar að skoðunum IMF,” sagði Óháða Matskrifstofa IMF í skýrslu sem birt var í dag (21.6).

IMF er þó ekki aðeins að ljúga, stofnunin er einnig léleg í sínu fagi: “Skrifstofan  kemst að þeirri niðurstöðu að á árunum 1999 til 2008 hafi rannsóknir sjóðsins ekki verið nógu markvissar vegna ónógrar samvinnu við þau lönd sem rannsökuð voru.”  Gæði tæknilegrar vinnu ásamt yfirlitsskýrslum um svæði voru “verulega misjöfn,” sagði í skýrslunni. 

Hvað veldur? 

Internal IMF Audit Finds Bailout Fund Has Zero Credibility

Hér kemst Durden að þeirri niðurstöðu að um íslenska FME heilkennið sé að ræða.  Starfsmenn sjóðsins voru stjarfir af ”anduktri hrifningu” á Ben Bernanke og vestræna efnahagsundrinu, sáu engin merki um hrunið fyrr en of seint.

Ef IMF myndi raunverulega vinna óháða vinnu og hætta dýrkun á alþjóðlegu seðlabankamönnunum, þá myndi stofnunin kannski virka betur og öðlast trúverðugleika, segir Durden.  En vandamálið er bara að stofnunin er sett á laggirnar og er stýrt (allavega á bak við tjöldin) af þessum alþjóðlegu seðlabankamönnum.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,