iDót með hugsæi


Mynd CC Dawn Ashley

Þetta er jaðartæki sem gæti tekið við af músinni sem fljótlegasta aðferðin til að knýja tölvuna þína.  Það er enn að slíta barnskónum, en margir fjársterkir aðilar hafa um langa hríð ausið peningum í rannsóknir og þróun á hugmyndum sem tengjast tækninni.

Að koma á tengslum milli heilastarfsemi okkar og tölva.

Að nota heilabylgjurnar til að stýra músarbendli, eða gera flóknari greiningar á heilaritinu til að túlka ástand notandans, er hann æstur, rólegur, einbeittur, í trans eða hvað. 

Þegar tæknin er farin að geta spáð með sæmilegu móti um hugarástand notandans, má taka næsta skref:

Vekur mynd eða atburðarrás á tölvuskjánum hrifningu, ógeð, forvitni, eða aðrar tilfinningar hjá notandanum?

Auglýsingar sem breyta sér eftir viðbrögðum notandans.  Æsist notandinn ekki upp við brjóstaskorur og kvenrassa?  Hvað þá með stælta stráka?  Auglýsingin getur hafist með stillingarkafla, þar sem grunnupplýsingar um vöruna eru lesnar undir ýmsum myndum af aðlaðandi kven og karlpening, ásamt vísun í ofbeldi, ást, múslima og svo framvegis.  Svo þegar búið er að lesa notandann, þá kemur aðalkafli auglýsingarinnar, sérhannaður fyrir notandann.  Til dæmis íðilfögur dóminatrix leðurstelpa að pynda múslimabarn, kófsveitt við svipuhögg og vantspyndingar, en tekur sér svo hlé til að svala þorstanum með Vífilheljar Vosbúð, kolefnislausa nítrox drykknum.

En að hver og ein auglýsing afli þessara grunnupplýsinga er auðvitað frumstætt.  Google er nú þegar að hlusta á hljóðnema fólks og glápa á það í gegn um vefmyndavélina.  Það notar svo reiknialgrím til að safna upplýsingum, er þetta hundgá sem heyrist í bakgrunni?  Þá má skjóta inn gæludýratengdum auglýsingum í google og fesbúkinn. 

Auðvitað myndu gælufyrirtæki njósnaiðnaðarins, svo sem Google og Feisbúk, gera sér miðlæga gagnagrunna um alla þá sem eru svo einfaldir að nota hugsæisbúnað á tölvum sem tengjast netinu.  Þeir kortlegga hugann hjá hverjum og einum, gefa þeim einkun út frá viðbrögðum þeirra við hinum og þessum áreitum.  Vita svo nákvæmlega hvaða hnappa þarf að þrýsta á til að stýra huga fólksins, mata það með upplýsingum sem framreiddar eru sérstaklega með tilliti til viðbragða hvers og eins, þannig að allir komist að sömu niðurstöðu.  Nýasta tækni í lýðræði.

Auðvitað hefur svipuðu verið beitt alla tíð síðan sjónvarpið varð almannaeign.

En nú getur þetta orðið mun áhrifaríkara, þar sem hægt er að miða áróðurinn sérstaklega við “þarfir” hvers og eins.

Þannig endar þessi tækni á því að taka 360 gráðu beygju. 

Hún byrjar sem aðferð fyrir okkur til að stjórna tölvunni.

En endar sem aðferð fyrir tölvuna að stjórna okkur.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: